Trump lofar að koma í veg fyrir að störf tapist í Kína Gunnar Hrafn Jónsson skrifar 14. maí 2018 06:41 Trump hefur hingað til haft meiri áhyggjur af því að störf fari frá Bandaríkjunum til Kína Vísir/AFP
Donald Trump Bandaríkjaforseti setti færslu á Twitter í nótt þess efnis að hann og Xi Jinping, forseti Kína, myndu leita allra leiða til að bjarga kínverska fjarskiptarisanum ZTE. Verð hlutabréfa á mörkuðum í Hong Kong tók strax mikinn kipp við tíðindin. Bandaríska viðskiptaráðuneytið setti fyrtækið í sjö ára langt viðskiptabann í síðasta mánuði vegna ásakana um að það hefði átt í ólöglegum viðskiptum í Íran og Norður-Kóreu. Um áttatíu þúsund manns starfa fyrir ZTE í Kína en fyrirtækið þyrfti að óbreyttu að hætta allri starfsemi þar sem það reiðir sig á bandaríska íhluti og tækni. Trump segist nú hafa gefið viðskiptaráðuneytinu skipun um að leysa málið til að koma í veg fyrir að fjöldi starfa tapist í Kína. Þykir það sæta nokkrum tíðindum að Trump hafi áhyggjur af atvinnuleysi í Kína miðað við fyrri yfirlýsingar um viðskiptahalla. Nú er annað hljóð komið í strokkinn og segja fréttaskýrendur það til marks um að Trump sé að reyna að koma til móts við Kínverja í aðdraganda formlegra viðræðna síðar í þessari viku. Þar munu fulltrúar ríkjanna reyna að vinda ofan af viðskiptastríði sem hófst með innleiðingu tolla á kínverskar innflutningsvörur í Bandaríkjunum.
Mest lesið Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Innlent Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Erlent Festust á hvolfi í hálftíma Erlent Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Innlent Of snemmt að kenna bikblæðingum um Innlent Alvarlegt rútuslys í Öxnadal Innlent Guðni snýr aftur í sagnfræðina Innlent Þeir sem „brjóta alvarlega af sér“ verði sviptir dvalarleyfum Innlent Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Innlent Fleiri fréttir Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Sjá meira