Fótbolti

30 dagar í HM: Orustan um Santiago

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Leikmenn lágu óvígir um allan völl
Leikmenn lágu óvígir um allan völl vísir/getty
Enski dómarinn Ken Aston var frumkvöðullinn sem fann upp á því að nota gul og rauð spjöld við dómgæslu í fótbolta. Hugmyndin skall í kollinn á honum þegar hann var að keyra um Lundúnaborg og þurfti að stoppa á umferðarljósum. Spjöldin voru tekin í notkun á heimsmeistaramótinu 1970 í Mexíkó, fjórum árum eftir að Aston datt þetta í hug.

Lituðu spjöldin voru lausn Aston við samskiptaörðugleikum inn á vellinum, hugmyndin kviknaði eftir að leikmaður hafði ekki skilið að dómarinn væri að reka hann út af í leik Englands og Argentínu á HM 1966skjáskot/fifa tv
Aston var formaður dómaranefndar heimsmeistaramótanna 1966, 1970 og 1974. Áður en hann tók við þeirri stöðu var hann háttvirtur dómari og var hann einn af átta dómurum sem dæmdu heimsmeistarakeppnina í Síle árið 1962.

Þar var hann fenginn til þess að dæma leik gestgjafanna Síle og Ítalíu í Santiago í riðlakeppninni. Sá leikur hefur seinna fengið viðurnefnið orustan um Santiago og er af mörgum talinn einn ofbeldisfullasti fótboltaleikur allra tíma.

„Góða kvöldið. Leikurinn sem þið eruð í þann mund að sjá er sá heimskulegasti og ógeðslegasti í fótboltasögunni. Þetta er í fyrsta skipti sem þessar þjóðir mættust og vonandi það síðasta,“ svo heilsaði lýsandinn David Coleman útsendingu breska ríkissjónvarpsins af leiknum tveimur dögum eftir að hann fór fram.

Aston rekur Mario David af velli í Santiagovísir/getty
Fyrir leikinn höfðu fjölmiðlar á Ítalíu skrifað greinar um Síle og Santiago sem voru vægast sagt niðrandi. Fyrirsagnir á borð við „Santiago er hörmung“ og „Heilt hverfi undirtekið af vændi“ litu dagsins ljós og voru stuðningsmenn og leikmenn Síle allt annað en ánægðir með þessar greinar og mættu með hefndarhug inn í leikinn.

Strax frá fyrsta flauti var hrækt, potað, sparkað og kýlt. Aðeins 12 sekúndur voru liðnar af leiknum áður en Aston dæmdi fyrstu aukaspyrnuna. Ítalir misstu Giorgio Ferrini af velli á 12. mínútu, hann streittist svo á móti að lögreglan þurfti að draga hann út af vellinum.

Leonel Sanchez kýldi Mario David án refsingar en þegar David sparkaði í hausinn á Sacnhez nokkrum mínútum seinna var hann sendur í sturtu. Sanchez hélt áfram og nefbraut Humberto Maschio með vinstri handar neglu en enn hékk hann á vellinum. Þrisvar til viðbótar þurfit að kalla til lögregluyfirvöld.

Þrátt fyrir að leikurinn væri frekar hópslagsmál heldur en fótboltaleikur þá fóru tvö mörk í netið, þau voru Chilemanna sem héldu áfram og unnu bronsverðlaun á heimavelli á meðan Ítalir sátu eftir.

Vísir telur niður fyrir HM í knattspyrnu sem hefst í Rússlandi þann 14. júní. Íþróttafréttamenn Vísis munu fylgja íslenska landsliðinu eftir hvert fótmál ytra.




Tengdar fréttir

31 dagur í HM: Skúrkurinn sem varð að hetju í ótrúlegum seinni hálfleik

Flestir fótboltamenn hafa lent í því á ferlinum að sinna ekki varnarvinnunni nógu vel eða gera mistök sem leiða til þess að andstæðingurinn skori. Oftast eru stuðningsmennirnir fúlir í smá stund eftir á, kannski nokkra daga, en það svo gleymist og lífið heldur áfram. Það er annað þegar mistökin gerast á stærsta sviðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×