Innlent

Rannsóknarnefnd segir vafasamt að upphefja ofhleðslu báta

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Þa ðer ekki að sjá að þessir bátar á Húsavík sé ofhlaðnir.
Þa ðer ekki að sjá að þessir bátar á Húsavík sé ofhlaðnir. Vísir/getty
Ofhleðsla báta er mjög alvarlegt mál og virðist vera allt of algeng. Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) hvetur fjölmiðla, samfélagsmiðla og aðra til að hætta því að upphefja slíka háttsemi sem hetjudáð eða afrek.

Þetta kemur fram í áliti nefndarinnar í kjölfar athugunar á atviki sem varðar bátinn Vin SH34. Í febrúar 2016 landaði báturinn, sem hafði verið á línu, í Grundarfirði átta tonnum af afla og var „birt opinber frétt um það sem ákveðið afrek“. Á fundi nefndarinnar fyrir tveimur árum var rætt um ofhleðslu báta og tekin ákvörðun um að taka málið til skoðunar þar sem stöðugleikagögn um bátinn bentu til að um mjög varhugaverða ofhleðslu hefði verið að ræða.

Samkvæmt tölum um löndun fyrir bátinn þennan dag reyndust átta tonn af afla vera um borð, sex tonn í lest bátsins og tvö tonn á þilfari hans. Umframþungi reyndist vera tæp fjögur tonn miðað við skráningu.

Báturinn hafði hins vegar verið lengdur árið 2010 án þess að Siglingastofnun hefði krafist nýrra stöðugleikaútreikninga. Ný hallaprófun leiddi í ljós að yfirhleðsla í þetta skipti var 5.490 kíló.

„RNSA telur að þó ekki hafi farið illa í þessu tilviki hafi verið fullt tilefni til að rannsaka þennan atburð sem „sjóatvik“ eins og þau eru skilgreind í lögum […] Háttsemin stofnaði í hættu öryggi skipsins og áhafnar,“ segir í skýrslunni. „Nefndin hvetur skipstjórnendur til að kynna sér burðargetu og stöðugleika báta sinna, virða það og tryggja öryggi skipa og áhafnar sinnar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×