Íþróttir og pólítík Kristín Þorsteinsdóttir skrifar 5. maí 2018 10:00 Á tyllidögum er oft sagt að íþróttir og stjórnmál eigi ekki samleið. Er átt við að þessu tvennu skuli halda aðskildu. Íþróttamanna sé að stunda íþróttir og stjórnmálamanna að iðka pólitík. Samt er það svo að íþróttakeppnir eru vettvangur sem tekið er eftir. Ríflega einn milljarður manna horfði á úrslitaleik Heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu 2014. Talið er að ríflega þrír milljarðar hafi horft á keppnina á einhverjum tíma. Áhorfstölur á Ólympíuleikana eru sambærilegar. Óhjákvæmilega vilja valdhafar nýta sér viðburði sem augu heimsbyggðarinnar eru á. Hið sama gildir um aðra sem vilja koma pólitískum skilaboðum á framfæri. Því er í raun ómögulegt að aðskilja alveg stjórnmál og íþróttir. Staðreyndin er sú að íþróttaviðburðir hafa alla tíð verið nýttir í pólitískum tilgangi. Frægasta dæmið er sennilega Ólympíuleikarnir í Berlín 1936, sem urðu eins konar sýningargluggi fyrir Þýskaland Hitlers og nasismans. Þá fóru leikarnir fram þrátt fyrir spennu á alþjóðavettvangi, og íþróttamennirnir tóku þátt þrátt fyrir að margir þeirra væru beinlínis óvelkomnir til Þýskalands Hitlers. Þar kepptu til dæmis íþróttamenn af gyðingaættum og unnu til verðlauna. Í seinni tíð virðast stjórnvöld í einræðisríkjum, eða ríkjum þar sem stjórnarfari er af öðrum ástæðum ábótavant, í auknum mæli getað „keypt“ íþróttaviðburði. Þetta hefur verið áberandi í knattspyrnunni, en HM 2018 fer eins og kunnugt er fram í Rússlandi og síðan í Katar árið 2022. Einnig á þetta við í öðrum greinum; þrjár fyrstu dagleiðir Ítalíutúrsins í hjólreiðum fara fram í Ísrael í ár. Engum dylst að þar réðu peningar för, og vógu þyngra en áhyggjur af öryggi hjólreiðamannanna eða stjórnmálaástandinu í þessum viðkvæma heimshluta. Í tilviki Katar og HM 2022 liggur fyrir að engin aðstaða var til slíks mótshalds í landinu. Þar er takmörkuð knattspyrnuhefð og hitastigið á meðan mótið fer fram er beinlínis hættulegt heilsu leikmanna. Stjórnvöld í Katar hafa lagt í stórkostlega uppbyggingu á leikvöngum og aðstöðu og notað til þess vinnuafl sem varla er hægt að kalla annað en þræla. Auðvitað er til skammar að alþjóðaknattspyrnuhreyfingin taki þátt í slíku. Málefnaleg rök fyrir því að halda mótið í þessum heimshluta á þessum tíma árs eru ekki til. Peningarnir réðu. Ekki er heldur hægt að aðskilja HM sem fram fer í Rússlandi í sumar alveg frá pólitíkinni. Það eru viðsjárverðir tímar í samskiptum Vesturlanda og Rússlands. Rússar halda uppi linnulausum áróðri gegn Vesturlöndum innanlands. Nú síðast beittu Vesturlönd Rússa þvingunum vegna efnaárásarinnar í Salisbury á Englandi. Íslendingar tóku þar þátt og utanríkisráðherra hefur gefið út að ríkisstjórnin hyggist enga opinbera fulltrúa senda á mótið. Auðvitað kunna slík skilaboð að þykja léttvæg. Þetta er engu að síður fórn fyrir þjóð sem upplifa mun sínar stærstu stundir í íþróttasögunni á HM í sumar. Því má segja að utanríkisráðherra hafi tekist að feta einstigið ágætlega og komið hneykslan á framferði Rússa áleiðis. Ólíklegt er að útspil ráðherra hafi mikil áhrif á leikmenn íslenska liðsins. Þeir munu halda sínu striki. Áhorfendur heima í stofu og á völlunum í Rússlandi munu sömuleiðis ekki missa svefn yfir framferði Rússa á alþjóðavettvangi. Að því leyti er gamla klisjan rétt. Mótið fer fram og leikirnir verða spilaðar, hvað sem tautar og raular. Eða eins og Bill Shankly, fyrrverandi stjóri Liverpool sagði: „Knattspyrnan snýst ekki um líf og dauða. Hún er miklu mikilvægari en svo.“ Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Er óverðtryggða lánið að ganga frá fjölskyldunni? Alma Björk Ástþórsdóttir Skoðun Er mörgum lesendum Vísis slétt sama um afkomu sína og velferð? Ole Anton Bieltvedt Skoðun Táknmyndir íslenska lýðveldisins Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson Skoðun Tökum Viktor á þetta og enn lengra Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Halldór 15.06.2024 Halldór Skoðun Skoðun Táknmyndir íslenska lýðveldisins skrifar Skoðun Er óverðtryggða lánið að ganga frá fjölskyldunni? Alma Björk Ástþórsdóttir skrifar Skoðun Tökum Viktor á þetta og enn lengra Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Er mörgum lesendum Vísis slétt sama um afkomu sína og velferð? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Til hamingju með daginn! Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Vetur að vori - stuðningur eftir óveður Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Er þensla vegna íbúðauppbyggingar? Jónas Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Viðurkennum þjóðarmorð á Armenum Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Þegar kvíðinn tekur völdin Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Atvinnulífið og fíkniefnasalan Ólafur Kjartansson skrifar Skoðun Drasl Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Er lýðræðinu viðbjargandi? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Forsetapróf Auður Guðna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Aukin sala áfengis ógnar grundvallarmarkmiðum lýðheilsu Aðalsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Svik VG í jafnréttismálum Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun Ingólfur krítar liðugt Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Fáu spáð en vel fylgst með Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Armæða um íslenska tungu Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Það eru lög í landinu Líneik Anna Sævarsdóttir skrifar Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Úr buffi í klút Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar Skoðun Málsvari minksins Lárus Karl Arnbjarnarson skrifar Skoðun Skuldum við 17 þúsund íbúðir á höfuðborgarsvæðinu? Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Förum vel með byggingarvörur Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar
Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun