Viðskipti innlent

Elon Musk vill flýta komu Tesla til Íslands

Sigurgeir Ingi Þorkelsson Eyvinds skrifar
Fá Íslendingar brátt Tesla-umboð hingað til lands?
Fá Íslendingar brátt Tesla-umboð hingað til lands? Vísir/Getty
Elon Musk segist vilja flýta komu Tesla-umboðs til Íslands. Þetta kemur fram í svari opinbers Twitter-reiknings Musk við fyrirspurn annars notanda sem berst fyrir því að fá umboðið, sem selur rafbíla, til Íslands. Musk biðst á sama tíma afsökunar á því hve langan tíma hafi tekið fyrir Tesla að koma til Íslands.

Fyrirspurnin barst frá notandanum A Tesla In ICEland, sem formaður Rafbílasambands Íslands, Jóhann G. Ólafsson stendur á bakvið.

Í upprunalega tístinu segir Jóhann: Á Íslandi, þar sem 350 þúsund manns búa, seldust fleiri rafbílar en í bæði Danmörku og Finnlandi á síðasta ári. Tesla er starfandi í báðum löndum. Elon Musk, hvað þyrfti til að fá umboðið til Íslands?

Vísir greindi frá því í byrjun þessa árs að 415 rafbílar hefðu selst á Íslandi í fyrra. Sala árið á undan var 227 bílar og tvöfaldaðist því næstum salan milli ára. Samkvæmt síðunni CleanTechnica.com, sem sérhæfir sig í fréttum af umhverfisvænum lausnum, seldust 698 rafbílar í Danmörku árið 2017. Það er næstum því 70% meiri sala en á Íslandi.

Í samtali við Vísi segir Jóhann að þetta skýrist af því að inni í tölunum sé ekki að finna þá rafbíla sem fluttir eru inn notaðir.

Fréttastofan Bloomberg greindi frá því í fyrra að á fyrsta fjórðungi ársins 2017 hefði sala á rafknúnum bílum í Danmörku fallið um rúm 60% miðað við fyrra ár. Var þessi breyting ekki síst tengd við aðgerðir dönsku ríkisstjórnarinnar þar sem hafist var handa við að afnema skattaívilnanir fyrir rafbíla.

Fyrirspurn Jóhanns var send kl 17:12 í gær og barst svarið litlum þremur mínútum seinna.

Jóhann segist ekki hafa búist við því að Musk myndi svara, en Jóhann hafði áður sent erindið til hans.

„Að þessu sinni var hann greinilega að skoða twitter þegar ég tísti.“

Musk var síðast í fréttum hér á Vísi í gær, en þá var það fyrir ókurteisi í garð fréttamanna sem vildu spyrja hann spurninga. Musk hefur greinilega verið betur upp lagður þegar fyrirspurn Jóhanns barst.

Musk er virkur notandi Twitter og tjáir sig þar um ýmis málefni. Musk lýsti því til að mynda yfir í byrjun þessa árs að sá orðrómur væri alls ósannur að hann væri í laumi að skipuleggja uppvakningaragnarök til að auka eftirspurn eftir vörum sínum.

Þann 25. apríl síðastliðinn lýsti Musk því svo yfir að hann væri að byggja vélrænan dreka. Það er því alls óljóst hve mikið sannleiksgildi yfirlýsingar Musk á Twitter hafa.


Tengdar fréttir

Sala á rafbílum nærri tvöfaldast

Sala á rafbílum nærri tvöfaldaðist hér á landi í fyrra og búast sérfræðingar við frekari aukningu á þessu ári. Niðurfelling á vörugjöldum og sköttum hefur skilað sér í aukinni eftirspurn.

Elon Musk áformar engin uppvakningaragnarök

Einn ríkasti maður heims lætur rafbílaveldi sitt og áform um að byggja upp samfélag á Mars ekki duga sér. Í vikunni seldi hann almenningi eldvörpur fyrir milljarð króna. Óvíst er hvort um grín sé að ræða eða hvort einhver ástæða liggi að baki nýjasta ævintýri Elons Musk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×