Fótbolti

Arnór ónotaður varamaður í tapi gegn Elíasi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Elías Már er að gera góða hluti í Svíþjóð.
Elías Már er að gera góða hluti í Svíþjóð. vísir/getty
Elías Már Ómarsson spilaði allan leikinn fyrir Gautaborg sem vann 2-1 sigur á Malmö í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Gautaborg komst yfir í fyrri hálfleik en Malmö jafnaði í upphafi síðari hálfleiks. Sigurmarkið kom svo á 58. mínútu.

Gautaborg er í sjötta sæti með tólf stig en Malmö er einungis með ellefu stig í áttunda sætinu.

Elías spilaði allan leikinn fyrir Gautaborg en Arnór Ingvi Traustason var ónotaður varamaður hjá meistaraliði Malmö frá því í fyrra.

Rúnar Alex Rúnarsson fékk á sig tvö mörk er Nordsjælland tapaði fyrir Midtjylland 2-1 í dönsku úrvalsdeildinni. Midtjylland er þremur stigum frá Bröndby á toppnum en Nordsjælland er í fjórða sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×