Erlent

Dani sá fyrsti sem er dæmdur fyrir falsfréttir í Malasíu

Kjartan Kjartansson skrifar
Sulaiman sakaði lögreglu um að vera óeðlilega lengi á staðinn þegar Faid al-Batsh, palestínskur fyrirlesari, var skotinn til bana í Kúala Lúmpúr 21. apríl.
Sulaiman sakaði lögreglu um að vera óeðlilega lengi á staðinn þegar Faid al-Batsh, palestínskur fyrirlesari, var skotinn til bana í Kúala Lúmpúr 21. apríl. Vísir/AFP
Dómstóll í Malasíu sakfelldi mann í fyrsta skipti á grundvelli nýrra laga gegn svonefndum falsfréttum í dag. Danskur maður sem birti myndband á samfélagsmiðli með því sem var sagt ónákvæmri gagnrýni á lögreglu var dæmdur í mánaðarfangelsi.

Salah Salem Saleh Sulaiman, Dani af jemenskum uppruna á fimmtugsaldri, birti myndband á Youtube þar sem hann fullyrti að það hefði tekið lögreglu fimmtíu mínútur að koma á staðinn þegar palestínskur fyrirlesari var skotinn til bana um þarsíðustu helgi.

Lögreglan sagðist hins vegar aðeins hafa verið átta mínútur á leiðinni. Sulaiman, sem er 46 ára gamall, var því ákærður fyrir að hafa „birt falsfréttir með myndbandi á Youtube með illum ásetningi“.

Sulaiman lýsti sig sekan en hann hafði engan verjanda við réttarhöldin í dag, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Hann segist hafa birt myndbandið í bræði og hann hafi ekki ætlað sér að valda neinum skaða. Baðst hann afsökunar á framferði sínu.

Allt að sex ára fangelsi liggur við dreifingu falsfrétta

Samkvæmt nýju lögunum er hægt að dæma fólk í allt að sex ára fangelsi fyrir að bera út falsfréttir. Malasískt fjölmiðlafyrirtæki hefur höfðað mál og fullyrðir að lögin stangist á við stjórnarskrá. Fleiri ríki í Suðaustur-Asíu eins og Singapúr og Filippseyjar íhuga nú að taka upp sambærilega löggjöf. 

Sulaiman var dæmdur til að greiða sekt en hann kaus hins vegar frekar að afplána mánaðarfangelsisvist þar sem hann gat ekki greitt sektina.

Falsfréttir hafa verið til mikillar umfjöllunar undanfarið, ekki síst eftir miklar áróðursherferðir sem voru háðar í tengslum við bandarísku forsetakosningarnar árið 2016 og Brexit-þjóðaratkvæðisgreiðsluna í Bretlandi. Þá báru fjöldi vafasamra vefsíðna og svonefndra botta út lygar og hálfsannleik í stórum stíl.

Síðan hefur hugtakið orðið að nokkurs konar formælingu á neikvæðum fréttum í meðförum Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Valdboðssinnar í fleiri ríkjum hafa í auknum mæli tekið upp orðræðu forsetans gegn fjölmiðlum og gagnrýninni umfjöllun þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×