Innlent

Karlmaður fannst látinn í sjónum

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Leit stóð yfir að manninum í nótt.
Leit stóð yfir að manninum í nótt. Vísir
Karlmaður á sextugsaldri fannst látinn í sjónum norðan við Vatnagarða í Reykjavík á sjötta tímanum í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 

Farið var að óttast um afdrif mannsins eftir að bátur hans fannst mannlaus neðan við athafnasvæði Samskipa í Kjalarvogi eftir klukkan eitt í nótt.

Sjá einnig: Víðtækri leit í Sundahöfn vegna mannlauss smábáts lokið

Þá þegar hófst víðtæk leit að manninum sem lauk svo á sjötta tímanum eins og áður sagði. Ekki er grunur um saknæmt athæfi en maðurinn var einn á ferð á bátnum.

Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu, að því er segir í tilkynningu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×