Úranus lyktar eins og fúlegg Kjartan Kjartansson skrifar 27. apríl 2018 16:33 Voyager 2 tók þessa mynd af Úranusi þegar geimfarið þeyttist fram hjá árið 1986. NASA/JPL-Caltech
Athuganir á reikistjörnunni Úranusi hafa leitt í ljós að brennisteinsvetni er að finna í efstu lögum skýjahulunnar sem umlykur hann. Litlar líkur eru þó á því að óþefurinn yrði mönnum ofviða. Stjörnufræðingar notuðu innrauðan sjónauka á Havaí til að efnagreina efstu lög lofthjúps gasrisans Úranusar sem er næst ysta reikistjarnan í sólkerfinu okkar. Efnasamsetning lofthjúpsins hefur legið á huldu þrátt fyrir framhjáflug Voyager 2-geimfarsins og aðrar rannsóknir frá jörðinni. Úranus er eini gasrisinn í sólkerfinu þar sem brennisteinsvetni, sem oft er talað um að lykti eins og fúlegg, hefur fundist í lofthjúpnum. Á Júpíter og Satúrnusi hefur ammóníak fundist í skýjum fyrir ofan lofthjúpinn. Uppgötvunin gefur vísindamönnunum vísbendingu um myndun og þróun Úranusar. Í frétt á vef bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA er haft eftir Patrick Irwin, aðalhöfundi rannsóknarinnar við Oxfordháskóla, að menn þyrftu ekki að hafa miklar áhyggjur af óþefnum við Úranus þó ekki komi það til af góðu. „Köfnun og vosbúð í mínus 200°C köldum lofthjúpnum sem er að mestu leyti úr vetni, helíum og metani tæki sinn toll löngu áður en lyktin gerði það,“ segir Irwin.
Úranus Vísindi Mest lesið „Þetta er bara of dýrt eins og staðan er í dag“ Innlent Talið að lík Mosley sé fundið Erlent Flugvél til Akureyrar snúið við á miðri leið Innlent Vanhæfur þegar hann dæmdi mann til að greiða 142 milljónir Innlent Ótrúlegt sjónarspil á Grindavíkurvegi Innlent Apollo-geimfarinn sem laumaði íslenskum peningi til tunglsins Innlent Þremur skipverjum verið sleppt úr haldi Innlent 19 ára stelpa á Selfossi útskrifuð sem vélvirki Innlent Áætlanir gera ráð fyrir að hraun fari yfir lagnir Innlent Hrauntungan mallar löturhægt áfram Innlent Fleiri fréttir Minnist ævintýragjarna og dásamlega mannsins síns „Allt sem gerist í Brussel snertir okkur“ Talið að lík Mosley sé fundið Ísraelar sagðir hafa drepið gísla og ríflega 200 Palestínumenn Drápu 93 við að bjarga gíslunum fjórum Árásarmaðurinn segist ekkert hafa á móti Mette Flæmskur aðskilnaðarflokkur sækir í sig veðrið Færeyskir atvinnurekendur segjast hafðir að spotti Fjórir gíslar frelsaðir á Gasa Vendingar í leit að sjónvarpslækni 39 ára karlmaður í haldi vegna árásarinnar á Mette Frederiksen Frederiksen slegin í miðborg Kaupmannahafnar Framkvæmdastjórn ESB gefur Úkraínu grænt ljós Írar kjósa til Evrópuþings Sunak biðst afsökunar á brotthvarfi frá Normandí Fyrstu úrslit Evrópukosninga staðfesta uppgang fjarhægrisins Tengdi stríðið í Úkraínu við baráttuna gegn fasismanum Frægs sjónvarpslæknis leitað Vill brottvísa hælisleitendum sem fremja alvarlega glæpi Stefnir í óefni náist samningar ekki í bráð Lést á leið til Normandí 80 árum eftir D-dag Göngugarpur uppljóstrar að hæsti foss Kína er buna úr röri Tvær ákærur bætast við í máli Rex Heuermann Leit Trump að varaforsetaefni að komast á skrið „Hrokafull afstaða“ að skilyrða stuðning við Úkraínu Fjórir létust í lestarslysi í Tékklandi Trump líklega sviptur byssuleyfinu í kjölfar dómsins Áttatíu ár frá innrásinni í Normandí Sá fyrsti til að greinast með H5N2 lést af völdum veirunnar Hótar því að sjá öðrum fyrir vopnum til að gera árásir á Vesturlönd Sjá meira