Handbolti

Bjarki Már og félagar í undanúrslit EHF-bikarsins

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Undanúrslitin bíða
Undanúrslitin bíða vísir/getty
Fuchse Berlin er komið í undanúrslit EHF-bikarsins í handbolta eftir níu marka sigur á RK Nexe í Berlín í dag. Bjarki Már Elísson skoraði eitt mark.

Lokatölur urðu 25-16 fyrir Bjarka og félögum en fyrri leikurinn í Króatíu fór 28-20 fyrir Nexe. Fuchse Berlin vinnur því samtals með einu marki, 45-44.

Fabian Wiede var markahæstur í liði Fuchse með sex mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×