Innlent

Kannabisræktun á Íslandi „í miklum blóma“ að sögn yfirlögregluþjóns

Elín Margrét Böðvarsdóttir og Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifa
Líkt og greint hefur verið frá í fréttum var hald lagt á yfir þrjú hundruð kannabisplöntur í einni umfangsmestu kannabisræktun sem hefur komið til kasta lögreglunnar á miðvikudaginn. Fjórir voru handteknir vegna málsins en yfirlögregluþjónn segir kannabisræktun hér á landi vera í miklum blóma en grunur leikur á um að efnin hafi verið ætluð til útflutnings.

Alls fundust 322 kannabisplöntur í húsnæði í Smáratúni í Þykkvabæ á Suðurlandi en húsnæðið höfðu pólskir leigjendur til umráða samkvæmt heimildum fréttastofu. Þá fundust tæpar sjö milljónir króna í reiðufé auk sextán kílóa af kannabislaufum en athygli vakti að hluti þeirra var frosin. „Málið er rannsakað í sjálfu sér sem bæði framleiðsla og hugsanlegur útflutningur á fíkniefnum og síðan peningaþvætti,” segir Karl Steinar.

Ræktunin var í iðnaðarhúsnæði í Smáratúni í Þykkvabæ samkvæmt heimildum fréttastofu.Vísir
Hann segir ræktunina vera með þeim umfangsmeiri sem lögregla hefur komist í tæri við í talsvert langan tíma en að aðgerðunum komu lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og embætti ríkislögreglustjóra, en rannsókn málsins er jafnframt unnin í samvinnu við tollyfirvöld, pólsku lögregluna og Europol.

„Við höfum stöðvað í aðgerðum síðasta rúma mánuð, þá eru þetta eitthvað um 1200 plöntur sem að hafa reyndar verið á mismunandi stigi ræktunar,” segir Karl Steinar, en plönturnar sem haldlagðar voru á miðvikudaginn voru flestar á lokastigi ræktunar. „Þetta er greinilega í miklum blóma,” segir Karl Steinar og vísar þar til umfangs kannabisræktunar á Íslandi.

Mönnunum fjórum sem handteknir voru, einum Íslendingi og þremur Pólverjum, hefur verið sleppt úr haldi. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort farið verði fram á farbann.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×