Sport

Fáum við bardaga ársins í kvöld?

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Dustin Poirier og Justin Gaethje í vigtun í gær.
Dustin Poirier og Justin Gaethje í vigtun í gær. Vísir/Getty
UFC heimsækir Arizona í kvöld með frábæra bardaga í farteskinu. Tveir af skemmtilegustu bardagamönnum léttvigtarinnar eigast við í kvöld og er óhætt að fullyrða að bardaginn verði afar skemmtilegur.

Í aðalbardaga kvöldsins mætast þeir Dustin Poirier og Justin Gaethje en báðir eiga það sameiginlegt að gefa ekkert eftir. Þetta er viðureign sem bardagaaðdáendur slefa yfir enda afskaplega ólíklegt (nánast ómögulegt vilja sumir meina) að þessi bardagi verði leiðinlegur.

Þeir Dustin og Justin láta verkin tala í búrinu og munu sennilega aldrei komast á forsíður blaðanna fyrir læti utan búrsins. Af samanlagt 40 sigrum beggja hafa aðeins sex komið eftir dómaraákvörðun. Dustin Poirier hefur fjórum sinnum verið í besta bardaga kvöldsins í UFC og samtals fengið sjö frammistöðubónusa í UFC. Justin Gaethje var léttvigtarmeistari WSOF lengi vel áður en hann fór í UFC en fyrstu tveir bardagar hans í UFC voru meðal 10 bestu bardaga ársins í fyrra. Það er því engin tilviljun að margir spá því að besti bardagi ársins muni eiga sér stað í kvöld.

Bardaginn verður aðalbardaginn á UFC on FOX 29 bardagakvöldinu í kvöld. Aðalhluti bardagakvöldsins verður sýndur á Stöð 2 Sport í kvöld en bein útsendingu hefst á miðnætti. Eftirtaldir fjórir bardagar verða sýndir í kvöld:

Léttvigt: Justin Gaethe gegn Dustin Poirier


Veltivigt: Carlos Condit gegn Alex Oliveira


Millivigt: Israel Adesanya gegn Marvin Vettori


Strávigt kvenna: Michelle Waterson gegn Courtney Casey

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×