Innlent

Bíll hálfur inn á veitingastað

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Ökumaðurinn ruglaðist á bremsu og bensíngjöf.
Ökumaðurinn ruglaðist á bremsu og bensíngjöf. Vísir/Aðsend
Enginn slasaðist er bíll keyrði inn um glugga á veitingastaðnum Ara í Kópavogi í kringum hádegisbil í dag. Talsverðar skemmdir urðu þó á glugganum og rammanum í kring en lítilsháttar skemmdir urðu einnig á húsgögnum. 

Ökumaður bílsins hafði ruglast á bremsu og bensíngjöf með fyrrgreindum afleiðingum að sögn Þóru Jónasdóttur aðstoðaryfirlögregluþjóns í Kópavogi. Mikill reykur kom í fyrstu og héldu lögreglumenn að kviknað hefði í en svo var ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×