Handbolti

Rúnar og félagar unnu mikilvægan sigur

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Rúnar Kárason.
Rúnar Kárason. vísir/getty
Rúnar Kárason og félagar í Hannover Burgdorf unnu góðan þriggja marka sigur á Melsungen þegar liðin mættust í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag en bæði lið eru í efri hluta deildarinnar.

Lokatölur 26-23 eftir að Melsungen hafði haft tveggja marka forystu í leikhléi, 12-14.

Rúnar hafði sig lítið í frammi í sóknarleiknum í dag en stóð vaktina í vörn Hannover Burgdorf og var einu sinni vikið af velli með tveggja mínútna brottvísun.

Ilija Brozovic og Kai Hafner voru atkvæðamestir í liði Hannover Burgdorf með fimm mörk hver. 

Hannover Burgdorf styrkti þar með stöðu sína í fjórða sæti deildarinnar en liðið er aðeins þremur stigum á eftir toppliði Rhein Neckar Löwen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×