Handbolti

Bjarki Már skoraði tvö þegar Berlínarrefirnir tryggðu efsta sætið

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Bjarki Már Elísson
Bjarki Már Elísson vísir/getty
Bjarki Már Elísson var í eldlínunni með Fuchse Berlin þegar liðið tryggði sér toppsætið í B-riðli EHF bikarsins með öruggum níu marka sigri á sænska liðinu Lugi.

Bjarki Már gerði tvö mörk en það var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi lenda þar sem staðan í leikhléi var 17-12 fyrir Berlínarrefunum. Þeir héldu áfram að auka við forystuna í síðari hálfleik og urðu lokatölur svo 34-25.

Hans Óttar Lindberg var markahæstur hjá Fuchse með sjö mörk en liðið er nú búið að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum keppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×