Handbolti

Kiel og Nantes komin í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Vardar Skopje bíður
Vardar Skopje bíður Vísir/Getty
Kiel er búið að tryggja sér farseðilinn í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir eins marks tap gegn Pick Szeged í Ungverjalandi í dag.

Kiel vann fyrri leikinn með sjö marka mun og vann einvígið því með sex marka mun, 50-56. Næsta hindrun Alfreðs Gíslasonar í Meistaradeildinni er Vardar.

Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði þrjú mörk úr fimm skotum í dag en hans þátttöku í Meistaradeildinni er nú lokið þetta tímabilið.

Á sama tíma tryggði Nantes sig áfram í 8-liða úrslit með því að gera jafntefli við Meshkov Brest. Nantes mætir Skjern í 8-liða úrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×