Handbolti

Valsbanarnir koma aftur til Íslands

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Eyjamenn geta hefnt fyrir Valsmenn
Eyjamenn geta hefnt fyrir Valsmenn Vísir/Valli
Í dag varð ljóst að ÍBV mun mæta rúmenska liðinu Potaissa Turda í undanúrslitum Áskorendabikars Evrópu í handbolta.

Turda hafði betur gegn norska liðinu Fyllingen en ÍBV rótburstaði rússneska liðið Krasnodar síðastliðinn laugardag.

Um er að ræða sama lið og sló Val úr sömu keppni, einnig í undanúrslitum, eftir einvígi sem verður helst minnst fyrir hörmulega dómgæslu í Rúmeníu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×