Handbolti

Nýr landsliðsmarkvörður Dana sá illa og rataði ekki um eigin borg

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Emil Nielsen.
Emil Nielsen. Vísir/EPA
Það eru ekki aðeins nýliðar í íslenska handboltalandsliðinu í þessu landsleikjahlé því danskur markvörður er líka að fá sitt fyrsta tækifæri með danska landsliðinu í Golden League æfingamótinu.

Markvörður þessi heitir Emil Nielsen og er aðeins 21 árs. Emil er ein af hetjum Skjern-liðsins sem sló út Veszprem í Meistaradeildinni um síðustu helgi.

Fyrir tveimur árum var útlitið hinsvegar ekki bjart hjá Emil sem fékk þá heilahimnubólgu. Þá sáu fáir fyrir sér að Emil Nielsen myndi einhvern tímann komast í danska landsliðið eftir það áfall.

Hann hefur hinsvegar komið sterkur til baka og frábær frammistaða hans með Skjern hefur komið honum inn í danska landsliðið.

„Þetta er búin að vera rosaleg vika. Við erum ótrúlega stoltir af sigrinum á Veszprem og hlakkar mikð til að mæta Nantes í átta liða úrslitunum. Vonandi getum við strítt þeim örlítið. Það var síðan frábært fyrir mig að vera valinn í landsliðið,“ sagði Emil Nielsen við DR.





Emil Nielsen talaði líka um veikindin sín við DR.

„13. apríl verða liðin tvö ár frá því að ég veiktist. Ég gat ekki séð fyrir mér þá að ég væri kominn hingað í dag. Þetta hefur gengið mjög vel og ég er rosalega ánægður að veikindin skipti ekki máli lengur. Ég hef gott fólk í kringum mig sem hefur hjálpað mér með allt og ég er mjög þakklátur fyrir það,“ sagði Nielsen.

„Vegna veikindanna þá var ég lengi í vandræðum í mínu daglega lífi en svo er ekki lengur. Ég var alltaf með hausverk og var í vandræðum með augun mín. Ég sá ekki nógu vel. Ég var líka í vandræðum með að átta mig hvar ég var og átti því í erfiðleikum með að rata. Ég er frá Árósum en átti oft í vandræðum með að rata um borgina. Það var mjög óþægilegt en er sem betur fer liðin tíð í dag,“ sagði Nielsen.

Emil Nielsen gæti spilað sinn fyrsta landsleik á morgun þegar Danir mæta Frökkum í Golden League æfingamótinu. Ísland mætir þá Noregi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×