Handbolti

Elías Már: Hún stökk með báðar fætur á undan sér og klippti Bertu niður

Svava Kristín Grétarsdóttir skrifar
Elías Már Halldórsson, þjálfari Hauka
Elías Már Halldórsson, þjálfari Hauka Vísir/Getty
Valur vann 22-20 sigur á Haukum í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Olís deildar kvenna í handbolta.

„Þetta var mjög erfitt í seinni hálfleik“ sagði Elías Már Halldórsson, þjálfari Hauka, að leik loknum á Hlíðarenda í kvöld.

„Ég er alveg ánægður með stelpurnar, mér fannst við vera að spila vel, frábær vörn og markvarslan var góð, sérstaklega í fyrri hálfleik. Það er margt gott sem við tökum með okkur eftir þennann leik og það er alveg á hreinu að við ætlum að borga fyrir þetta á föstudaginn.“

„Við vorum rúmar 20 mínútur einum færri í seinni hálfleiknum, mér fannst halla verulega á okkur í kvöld. Það er bara mjög erfitt að vinna jafn sterkt lið og Val þegar þú ert einum færri nánast heilan hálfleik.“ sagði Elías Már en hann var ekki sáttur við dómgæslu leiksins.

„Við fengum tvær brottvísanir í byrjun seinni hálfleiks, annað þeirra var algjör þvæla og hitt var bara brot sem var búið að viðgangast allan leikinn. Við erum þá orðnar tveimur undir og svo missum við líka Bertu Rut útaf fyrir alveg glórulaust brot, hún er lykilmaður hjá okkur, þetta var bara mikið á stuttum tíma. Við hefðum kannski getað unnið betur úr þessu en það er bara eitthvað sem ég þarf að kíkja betur á“

Elías Már var allt annað en sáttur við Gerði Arinbjarnar eftir brot hennar á Bertu Rut Harðardóttur. Gerður var of sein í boltann sem endaði með harkalegu samstuði. Brotið leit ekki vel út en Elías vissi ekki hvernig staðan á Bertu væri

„Þetta var algjörlega fáranlegt, tveggja fóta tækling útá miðjum velli. Ef hún fær ekki tvo - þrjá leiki í bann fyrir þetta þá væri það fáranlegt. Hún stökk með báðar fætur á undan sér og klippti Bertu niður, þetta var mjög ljótt“

„Vonandi er í lagi með hana, en það kæmi mér ekki á óvart ef hún væri frá út tímabilið miðað við fyrstu viðbrögð“ sagði Elías að lokum um stöðuna á Bertu Rut.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×