Erlent

Hertók þinghúsið í skugga vantrausts

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Mohamed Osman Jawari, forseti sómalíska þingsins.
Mohamed Osman Jawari, forseti sómalíska þingsins. Vísir/AFP
Hermenn, hliðhollir Mohamed Osman Jawari, forseta sómalíska þingsins, hertóku í gær sómalíska þinghúsið. Frá þessu greindi sómalíski fjölmiðillinn Shab­elle í gær. „Hermennirnir hafa umkringt þinghúsið og hafa tekið völdin á þinginu,“ sagði í frétt Shab­elle.

Til stóð að fram færi atkvæðagreiðsla um vantraust á þingforsetann í gær. Eftir að hermenn hans höfðu hertekið þinghúsið mætti forsetinn sjálfur á svæðið, að því er Puntland Post greindi frá. „Forsetinn var í fylgd annars varaforseta, Mahad Awad. Fyrsti varaforseti, Abdiweli Mudey, var mættur á undan þeim. Þingmenn þurftu hins vegar að bíða í löngum röðum eftir að fá heimild til að fara inn í þinghúsið,“ sagði á síðu Puntland Post.

Þingmennirnir sem andvígir eru Jawari yfirgáfu þingsal í kjölfar hertökunnar. Sögðu þeir við netmiðilinn Dhacdo að ómögulegt væri að halda þingfund við þetta ástand. Þá greindi Radio Kulmiye frá því að hermennirnir hafi ekki bara staðið vörð um þinghúsið heldur einnig ráðist endurtekið á blaðamenn sem fylgdust með gangi mála.

Deilur um dagskrá

Undanfarna daga hafði verið deilt harðlega um dagskrá þingsins. Vildu menn þingforseta frekar ræða fyrirhugaðan landamæramúr sem keníska ríkið ætlar sér að reisa á meðan andstæðingar þingforseta vildu halda áfram umræðum og svo greiða atkvæði um vantraust.

Styr hefur staðið um Jawari. Hefur Hassan Ali Kheyre forsætisráðherra verið sagður hafa fyrirskipað þingmönnum að lýsa yfir vantrausti á Jawari. Þingforsetinn hefur verið sakaður um að reyna að spilla fyrir störfum ríkisstjórnarinnar.

Þrýst hefur verið á Jawari að segja af sér vegna málsins. Hefur hann raunar áður staðið af sér vantraust. „Þau eru að krefjast þess að ég segi af mér. En ég ætla ekki að segja af mér. Ég vinn ekki fyrir þau,“ sagði Jawari á þriðjudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×