Handbolti

Frakkar sigruðu Dani

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Frakkar unnu sigur í kvöld
Frakkar unnu sigur í kvöld vísir/getty
Frakkar unnu nokkuð öruggan sigur á Dönum í Gulldeildinni, fjögurra þjóða æfingamóti sem fram fer í Noregi, í kvöld.

Danir byrjuðu leikinn betur og komust í 2-5 áður en Frakkar vöknuðu til lífsins og náðu að koma til baka. Eftir jafnan leik um miðbik fyrri hálfleiks stigu Frakkar á bensíngjöfina og náðu að koma sér upp fimm marka forystu fyrir hálfleikinn, 16-11.

Eftir það var nokkuð jafnt með liðunum. Danir náðu lítið að saxa á forskotið og um miðjan seinni hálfleik náðu Frakkar átta marka forystu. Danska liðið náði aðeins að laga stöðuna en Frakkar fóru að lokum með sex marka sigur 35-29.

Ísland, sem tapaði með tveimur mörkum fyrir Norðmönnum fyrr í dag, mætir Danmörku á laugardaginn og Frökkum á sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×