Enski boltinn

Guardiola: Þurfum hinn fullkomna leik

Anton Ingi Leifsson skrifar
Guardiola þarf að hugsa mikið fyrir leikinn í kvöld, hvernig hann ætlar að slá út rauða herinn.
Guardiola þarf að hugsa mikið fyrir leikinn í kvöld, hvernig hann ætlar að slá út rauða herinn. vísir/afp
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segir að liðið þurfi að mestu leyti að spila hinn fullkomna leik til þess að slá Liverpool út úr 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

City tapaði fyrri leiknum 3-0 og var algjörlega slegið niður á jörðina. Liðið tapaði aftur um helgina þegar grannarnir í United unnu þá 3-2 á Etihad en City þarf að vinna upp þriggja marka forskot Liverpool í kvöld.

„Til að fara áfram þurfum við hinn fullkomna leik. Við þurfum að skapa nóg af færum og nýta færin, fá á okkur fá færi og verjast vel og markvörðurinn okkar þarf að verja vel,” sagði Guardiola aðspurður um hvað þyrfti að gerast svo City færi áfram.

„Allar aðstæður þurfa að vera nær því að vera fullkomnar því úrslitin úr fyrri leiknum eru okkur í óhag. Við höfum 90 mínútur og við vitum að allt getur gerst.”

„Auðvitað þurfum við að skora fyrsta markið og einnig mark númer tvö en við munum sjá,” sagði Spánverjinn áður en talið barst að tapinu gegn United: „Ef við förum ekki áfram vegna sálfræðilegra þátta verður það góður skóli fyrir framtíðina.”

„Við erum ekki hér fyrir nokkra mánuði heldur í langan tíma og þá sérstaklega leikmennirnir. Það sem við höfum sýnt á þessu tímabili og einnig í síðasta leik er að við eigum möguleika á að búa til fullt af færum. Við vitum það og andstæðingurinn veit það.”

Flautað verður til leiks klukkan 18.45 í Manchester og verður leikurinn að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Upphitun hefst klukkan 19.15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×