Körfubolti

Keflavík hefur titilvörnina gegn Val

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Keflavíkurstúlkur með bikarinn stóra.
Keflavíkurstúlkur með bikarinn stóra. mynd/víkurfréttir/páll ketilsson
Deildarkeppni Domino's deildar kvenna er lokið og ljóst er hvaða lið mætast í úrslitakeppninni.

Haukar urðu deildarmeistarar fyrr í marsmánuði og voru Hafnfirðingar öruggir um fyrsta sætið. Skallagrímur endaði í fjórða sæti og munu liðin því mætast í undanúrslitum. Þau áttust við í dag og fóru Haukar með sigur eftir framlengingu.

Haukar komust ekki í úrslitakeppnina í fyrra en fóru í úrslit gegn Snæfelli árið 2016. Skallagrímur fór út í undanúrslitum 2017, í fyrsta skipti sem liðið fór í úrslitakeppnina.

Íslandsmeistarar Keflavíkur lentu í öðru sæti og mæta Val í undanúrslitunum.

Valur var síðast í úrslitakeppni 2016 en var þá sópað 3-0 út í undanúrslitum af verðandi Íslandsmeisturum Sæfells.

Keflavík var ekki í úrslitakeppninni 2016 en hefur annars verið fastur gestur í undanúrslitum og úrslitum.

Undanúrslitin hefjast annan í páskum, 2. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×