Erlent

Bræðurnir hreinsaðir af öllum grun um morðið á Kevin

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Robin og Christian voru sagðir hafa orðið hinum fjögurra ára Kevin að bana árið 1998. Þeir efuðust alltaf um sekt sína.
Robin og Christian voru sagðir hafa orðið hinum fjögurra ára Kevin að bana árið 1998. Þeir efuðust alltaf um sekt sína. Skjáskot SVT
Nær tuttugu ár eru liðin frá því að fimm og sjö ára gamlir sænskir bræður voru sagðir hafa banað hinum fjögurra ára Kevin Hjalmarsson í Värmland í Svíþjóð. Bræðurnir tveir hafa nú verið hreinsaðir af grun um aðild að málinu og þá telur saksóknari jafnframt að andlát Kevins hafi ekki borið að með saknæmum hætti.

Rannsókn tekin upp að nýju í fyrra

Hinn fjögurra ára Kevin fannst látinn um miðjan ágúst 1998 á trépalli í háu grasi í Glafsfjorden í hverfinu Dottevik hjá Arvika í Värmland.

Þegar sjúkralið mætti á staðinn var upphaflega talið að drengurinn hefði drukknað. Krufning leiddi hins vegar í ljós að þrengt hafi verið að hálsi hans með priki og hann kafnað.

Málið reyndi mikið á sænsku þjóðina á sínum tíma og ákváðu saksóknarar í maí síðastliðnum að rannsaka málið á nýjan leik eftir að nýjar upplýsingar litu dagsins ljós.

Bræðurnir Christian og Robin í viðtali við SVT í dag.Skjáskot SVT

Horfa fram á veginn

Bræðurnir Christian Karlsson og Robin Dahlén, sem nú eru 26 og 24 ára gamlir, voru sakaðir um að hafa orðið Kevin að bana, þá fimm og sjö ára, eftir tveggja mánaða rannsókn lögreglu. Þeir voru hreinsaðir af öllum grun og ákærum vegna málsins í dag.

„Við bræðurnir erum nú lausir allra mála hvað varðar rannsóknina,“ sagði Christian, annar bræðranna, í samtali við sænska ríkisútvarpið. Bræðurnir voru kallaðir á fund saksóknara vegna málsins í dag þar sem þeir voru upplýstir um stöðu rannsóknarinnar.

„Ég get aðeins lýst þessu sem hreinni hamingju,“ bætti Christian við og sagði þá bræður nú líta björtum augum til framtíðar eftir erfiða æsku, litaða af máli Kevins.

Faðir bræðranna, Weine Dahlén, var einnig mjög létt. „Þetta er alveg magnað. Þetta er svo fallegt, eftir svona mörg ár. Loksins. Loksins er allt komið í samt lag,“ sagði hann við fréttamenn í dag.



Talið að ekkert saknæmt hafi átt sér stað

Þá kom einnig fram á blaðamannafundi, sem saksóknarinn Niclas Wargren boðaði til í dag, að ekki sé talið að andlát Kevins hafi borið að með saknæmum hætti.

Lögregla var undir miklum þrýstingi að leysa málið á sínum tíma og yfirheyrði í heildina 120 börn og fjölda fullorðinna við rannsóknina. Þegar „játning“ bræðranna lá fyrir þótti hún þó ekki ýkja trúverðug, en þeir voru yfirheyrðir í 31 klukkutíma, og hafa þeir Christian og Robin ætíð efast um sekt sína. Þá voru Svíar almennt á þeirri skoðun að fjölmargt hafi mátt setja út á rannsókn lögreglu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×