Lífið

Sjáðu Bergþór og Hönnu Rún fara á kostum á dansgólfinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bergþór og Hanna fengu bestu einkunn gærkvöldsins.
Bergþór og Hanna fengu bestu einkunn gærkvöldsins.
Bergþór Pálsson og Hanna Rún Bazev Óladóttir fóru á kostum í dansþættinum Allir geta dansað í beinni útsendingu í gærkvöldi en þau dönsuðu vínarvals undir laginu I Have Nothing með Whitney Houston.

Parið fékk samtals 21 stig í einkunn frá dómurunum eftir dansinn og voru þau stigahæst eftir gærkvöldið.

Allir geta dansað er nýr íslenskur skemmtiþáttur í beinni útsendingu byggður á hinum geysivinsælu þáttum Dancing with the Stars.

Í þáttunum keppa tíu þjóðþekktir Íslendingar í dansi en þeir eru paraðir saman við tíu fagdansara og eitt par stendur uppi sem sigurvegari.

Kynnar í þáttunum eru Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir. Dómarar eru Selma Björnsdóttir, Karen Reeve og Jóhann Gunnar Arnarsson. Hér að neðan má sjá dansinn frá Bergþóri og Hönnu Rún.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×