Fótbolti

Pellegrino rekinn frá Southampton

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jæja, þetta er búið hjá mér.
Jæja, þetta er búið hjá mér. vísir/getty
Southampton hefur rekið Mauricio Pellegrino úr starfi sínu sem stjóri liðsins, en liðið hefur einungis einn af síðustu sautján leikjum sínum.

Um helgina tapaði Southampton 3-0 fyrir Newcastle og var það kornið sem fyllti mælinn hjá stjórnendum Southampton, en Pellegrino hefur verið í starfi frá því í júní.

Hann tók þá við af Claude Puel, sem stýrir nú Leicester, en Southampton er í sautjánda sætinu, einungis einu stigi fyrir ofan fallsætið.

Southampton er þó komið í átta liða úrslit enska bikarsins þar sem liðið mætir Wigan. Leitin að eftirmanni Pellegrino stendur nú yfir að sögn Southampton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×