Davidson eitt af fimm mögulegum öskubuskuævintýrum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2018 20:30 Jón Axel Guðmundsson. Vísir/Getty
Jón Axel Guðmundsson og félagar í Davidson fá mjög erfiðan mótherja í fyrstu umferð úrslitakeppni bandaríska háskólakörfuboltans en sumir eru á því að þeir gætu komið á óvart á móti Kentucky. Washington Post tók sig til að tilnefndi þau fimm skólalið sem að þeirra mati eru líklegust til að koma á óvart í marsfárinu í ár. Davidson er í þessum hópi hjá Washington Post ásamt Loyola Chicago, New Mexico State, Bucknell og Penn.Analysis | Five Cinderellas who can reach the Sweet 16, including a No. 16 seed https://t.co/tB6xjBziNa — Post Sports (@PostSports) March 13, 2018 Jón Axel Guðmundsson og félagar tryggðu sér sæti í úrslitakeppni NCAA með því að vinna Rhode Island í úrslitaleik Atlantic 10 deildarinnar. Leikurinn vannst með einu stigi og Jón Axel var í risastóru hlutverki í því að landa þeim sigri. Næst á dagskrá er leikur á móti Kentucky skólanum sem hefur dælt leikmönnum inn í NBA-deildina á síðustu árum. Þrír leikmenn liðsins á síðasta ári voru valdir í nýliðavalinu 2017.Watching the #SelectionShow on the bus home!#CatsAreWild#TCCpic.twitter.com/Hdgtt502B4 — Davidson Basketball (@DavidsonMBB) March 11, 2018 Blaðmaður Washington Post segir að sóknarleikur Davidson snúist mikið um þriggja stiga skotin en liðið hefur hitt úr 39 prósent þristanna sinna í vetur sem er frábær nýting. Jón Axel er ein af bestu skyttum liðsins en líka sá sem býr til mörg opin þriggja stiga skot fyrir félaga sína í liðinu. Takist Davidson að koma á óvart og slá út Kentucky þá bíður liðsins leikur á móti annaðhvort Arizona eða Buffalo í 32 liða úrslitunum. Leikur Davidson og Kentucky er á fimmtudagskvöldið en hann hefst klukkan 23:10 að íslenskum tíma.
Körfubolti Mest lesið Þýskur sigur í meistaramóti ökumanna Formúla 1 Segir að Sara Björk gæti farið til Sádi-Arabíu Fótbolti Mbappé nefbrotnaði líklega í naumum sigri Frakklands Fótbolti Jón Dagur orðaður við lið í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Yfirgefur Krít og segir laun ekki alltaf hafa skilað sér á réttum tíma Fótbolti Ljóst hvaða liðum Breiðablik, Stjarnan, Valur og Víkingur geta mætt Íslenski boltinn Annað ljótt brot á Caitlin Clark orðið að fjölmiðlafári Körfubolti Til Evrópu- og Spánarmeistara Barcelona fyrir metfé Fótbolti Fann gamlan vin í leit sinni að nýju og breyttu lífi Körfubolti Í tveggja leikja bann fyrir tæklinguna ljótu á Gündoğan Fótbolti Fleiri fréttir Boston Celtics NBA-meistari Sverðfiskur í Boston og Andri Már fer á leik næturinnar Annað ljótt brot á Caitlin Clark orðið að fjölmiðlafári Fann gamlan vin í leit sinni að nýju og breyttu lífi Njarðvík yfirgefur Ljónagryfjuna og fær nýjan heimavöll afhentan í sumar Nablinn slakur í Boston sólinni eftir slæman skell í spilavítinu Þorleifur áfram með Grindavík Mavericks knúðu fram annan leik með krafti Hélt að hásinin hefði slitnað: „Fékk svona tilfinningu eins og einhver hefði sparkað aftan í mig“ Celtics vilja sjá Horford hampa titlinum: „Þetta snýst um meira en bara mig“ Landsliðsmaður snýr heim úr atvinnumennsku og semur við Stjörnuna Alba Berlin tapaði úrslitaeinvíginu án Martins Hulda verður áfram hjá Grindavík Ho You Fat í Hauka Þorvaldur Orri kemur aftur til KR Luka ósáttur með dómgæsluna: „Aldrei komið fyrir mig áður“ Spurðu hvort Friðrik vildi ekki frekar bíða eftir starfi hjá karlaliði Boston með níu fingur á titlinum Körfuboltagoðsögnin Jerry West er látin Segist tilbúinn að deyja á vellinum en fær líklega ekki að spila Badmus fer hvergi WNBA-deildin að slá öll met Neitaði rúmlega átta milljörðum frá Lakers Aftur til Milwaukee eftir brottreksturinn frá Lakers Clark ekki valin í landsliðið: „Þeir vöktu skrímslið“ Kyrie Irving leyfir Luka Doncic ekki að axla ábyrgð á tapinu Mavericks dauðmóðir og Celtics taka tveggja leikja forystu Blása til styrktarleiks í minningu Bjarka Elvar Már áfram í Grikklandi en fer í nýtt félag Friðrik tekur við keflinu í Keflavík Sjá meira