Innlent

Það kostar ferðamenn milljónir að leigja þyrlu Landhelgisgæslunnar

Birgir Olgeirsson skrifar
ÞyrlaLandhelgisgæslunar við Landspítalann.
ÞyrlaLandhelgisgæslunar við Landspítalann. Vísir/Jóhann K. Jóhannsson
„Við erum að tala um einhverjar milljónir,“ sagði Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni fyrr í dag þegar hann var spurður hvað það kosti ferðamenn að leigja þyrlu Landhelgisgæslunnar.

DV greindi frá því fyrir skömmu að TF-SYN hefði verið nýtt til að fljúga með stóran hóp á vegum erlends auðmanns í útsýnisflug yfir Jökulsárlón. Tók ferðin um tvær klukkustundir og þurfti sérstaklega að breyta innvolsi þyrlunnar svo hún hentaði undir farþegaflutninga.

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar.
Georg sagði að slíkar beiðnir til Landhelgisgæslunnar berist frá  þyrlufyrirtækjum hér á landi sem bjóða upp á útsýnisflug. Er ástæðan sú að þessir auðkýfingar sem um ræðir mega ekki trygginga vegna fljúga með þyrlum sem knúnar eru áfram með einum mótor.

Georg sagði þetta auðvitað ekki gott fyrirkomulag og alls ekki eins og það á að vera. Landhelgisgæslan hefur þó undanfarin ár þurft að leigja og selja allt mögulegt til að halda sig við það fjármagn sem henni er skaffað.

Hann sagði verðmiðann á svona útleigu ansi háan en vildi þó ekki nefna neina ákveðna tölu. Hann sagði þó að um einhverjar milljónir væri að ræða.

„Svona verkefni eru ekki uppáhaldsverkefni,“ sagði Georg jafnframt.

Georg var spurður til hvaða ráðs Landhelgisgæslan myndi bregða ef að útkall myndi berast á meðan þyrla frá Landhelgisgæslunni er í ferðaþjónustuverkefnum.

Georg sagði þyrlu ekki leigða út í slíkt verkefni nema önnur sé tiltæk í nágrenninu. Þegar þyrlan er leigð út til ferðamanna er gerður sá fyrirvari að áhöfnin megi yfirgefa ferðamennina fyrirvaralaust og fara í útkall ef til þess kemur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×