Körfubolti

Jakob með tólf stig í sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jakob í leik með sænska liðinu.
Jakob í leik með sænska liðinu. vísir/heimasíða borås
Jakob Sigurðarson átti fínan leik í stórsigri Borås á Nässjö, 96-77, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Gestirnir í Borås byrjuðu af krafti og leiddu 25-14 eftir fyrsta leikhlutann og svo 49-35 í hálfleik.

Eftir það varð svo aldrei spurning um hvoru megin sigurinn myndi enda, en Borås unnu alla leikhlutana fjóra. Lokatölur 96-77.

Jakob átti góðan leik og skorað tólf stig og gaf þrjár stoðsendingar. Þar að auki tók hann þrjú fráköst, en Borås er komið í þriðja sæti deildarinnar eftir sigurinn, með 26 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×