Innlent

Handtekinn tvisvar sama dag

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Maðurinn hafði fengið skýr fyrirmæli um að hann mætti ekki aka bifreið hér á landi.
Maðurinn hafði fengið skýr fyrirmæli um að hann mætti ekki aka bifreið hér á landi. vísir/gva
Lögreglan á Suðurnesjum handtók í fyrradag sama ökumann tvisvar sinnum með fárra klukkustunda millibili. Maðurinn ók án ökuréttinda og þar að auki grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Maðurinn hafði fengið skýr fyrirmæli um að hann mætti ekki aka bifreið hér á landi en lét sér ekki segjast.

Þá hafði lögregla afskipti af þremur ökumönnum til viðbótar sem höfðu aldrei öðlast ökuréttindi. Einn þeirra var grunaður um ölvun við akstur. Fimmti ökumaðurinn sem lögregla hafði afskipti af ók svo sviptur ökuréttindum. Fáeinir ökumenn voru auk þess handteknir, grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×