Real í 8-liða úrslit áttunda árið í röð │ Sjáðu mörkin

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Cristiano Ronaldo hefur skorað í öllum leikjum sínum í Meistaradeild Evrópu í vetur en hann kom Real Madrid á bragðið gegn PSG í seinni leik liðanna í 16-liða úrslitum í kvöld.

Real vann fyrri leikinn á Spáni 3-1 og var því í góðri stöðu þegar liðið mætti til Parísar í kvöld. Heimamenn í PSG voru ekki eins ákafir og hefði mátt búast við þar sem þeir þurftu á að minnsta kosti tveggja marka sigri að halda til að komast áfram.

Gestirnir í Real skutu 22 sinnum í átt að marki á móti 8 tilraunum PSG. Ronaldo hefur fundið marknetið einstaklega vel í Meistaradeildinni í vetur og skorað í hverjum einasta leik sem hann hefur tekið þátt í, eða í síðustu átta leikjum. Hann opnaði markaskorunina í kvöld með skalla á 51. mínútu.

Eftir klafs í vítateig Real Madrid hrökk boltinn af Edinson Cavani og framhjá Keylor Navas í marknetið á 71. mínútu og leikurinn orðinn jafn.

PSG þurfti þó að skora tvö mörk til viðbótar til þess að eiga möguleika á að fara áfram. Í staðinn skoraði Casemiro sigurmarkið fyrir Real á 80. mínútu og tryggði Real 5-2 sigur í einvíginu.

Evrópumeistararnir eru því komnir áfram í 8-liða úrslitin áttunda tímabilið í röð og geta freistað þess að vinna titilinn þriðja árið í röð.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira