Sport

Gáfu borgarstjóranum Ísland

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hilmar Snær Örvarsson í góðum höndum á mótttökuathöfninni í dag.
Hilmar Snær Örvarsson í góðum höndum á mótttökuathöfninni í dag. ifsport.is
Íslenski keppnishópurinn á Vetrarólympíumóti fatlaðra var í dag boðinn velkominn í Ólympíuþorpið en mótið fer fram í PyeongChang í Suður-Kóreu frá 9 til 18. mars eða á sama stað og vetrarólympíuleikarnir fóru fram í síðasta mánuði.

Eftir langt og strangt ferðalag síðastliðinn sólarhring voru þeir Hilmar Snær Örvarsson, Þórður Georg Hjörleifsson (þjálfari Hilmars) og Einar Bjarnason (aðstoðarþjálfari) mættir við mótttökuathöfnina í dag.

Við móttökuathöfnina var skipst á gjöfum við borgarstjóra Paralympic-þorpsins en gjöf Íslands er unninn úr hrauni og er vatnsskorinn Íslandsmynd í stein hönnuð af gullsmíðafyrirtækingu SIGN. Það má því segja að íslenski hópurinn hafi gefið borgastjóranum Ísland.  Þetta kemur fram á heimasíðu Íþróttasambands fatlaðra.

Fimmtudaginn 8. mars verða æfingar hjá hópnum og föstudaginn 9. mars fer setningarhátíð leikanna fram þar sem Hilmar verður fánaberi Íslands en eins og áður hefur komið fram er Hilmar eini fulltrúi okkar Íslendinga á leikunum.

Hilmar Snær Örvarsson verður á leikunum fyrstur Íslendinga til að keppa i standandi flokki á Vetrar-Paralympics. Hann er líka sá yngsti sem Ísland hefur telft fram á Vetrar Paralympics frá upphafi.

Þetta er í fjórða sinn sem Ísland er með á vetrarólympíumóti fatlaðra en fyrst tók Íslands þátt í Lillehammer í Noregi fyrir 24 árum síðan.  

Ísland á Winter-Paralympics í fjórða sinn

1994 Lillehammer, Noregur: Svanur Ingvarsson, stjaksleðakeppni

2010 Whistler, Kanada: Erna Friðriksdóttir, alpagreinar sitjandi flokkur

2014 Sochi, Rússland: Ernar Friðriksdóttir og Jóhann Þór Hólmgrímsson alpagreinar, sitjandi flokkar.

2018 PyeongChang, Suður-Kórea: Hilmar Snær Örvarsson alpagreinar, standandi flokkur.

Hilmar er því fyrstur Íslendinga til að keppa í standandi flokki á Winter-Paralympics. Erna fyrst íslenskra kvenna á Winter Paralympics og Jóhann Þór Hólmgrímsson var fyrstur íslenskra karla í sitjandi flokki alpagreina og brautryðjandinn eins og gefur að skilja Svanur Ingvarsson sem síðar gegndi nefndarstörfum í vetraríþróttanefnd ÍF til fjölda ára og Erna Friðriksdóttir á þar nú sæti.

Hilmar Snær Örvarsson

Fæddur: 27. júlí 2000 (17 ára og þ.a.l. yngsti keppandinn á Winter Paralympics frá Íslandi).

Félag: Víkingur

Greinar: Svig og stórsvig

Þjálfari: Þórður Georg Hjörleifsson

Flokkur: LW2 (flokkur hreyfihamlaðra, keppa standandi)

Fyrsta alþjóðlega keppni á vegum IPC: 2014, Landgraaf í Hollandi (3. sæti, ungmennamót).

Dagsetningar:

6. mars: Íslenski hópurinn heldur af stað til S-Kóreu.

8. mars: Íslenski hópurinn boðinn velkominn í Ólympíumótsþorpið.

9. mars: Opnunarhátíð Winter-Paralympics.

14. mars: Svigkeppni karla, Hilmar Snær Örvarsson.

17. mars: Stórsvigskeppni karla, Hilmar Snær Örvarsson.

18. mars: Lokahátíð Winter Paralympics

19. mars: Íslenski hópurinn heldur heim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×