Real kláraði Leganes

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leikmenn Real fagna marki í kvöld.
Leikmenn Real fagna marki í kvöld. vísir/getty
Real Madrid kláraði Leganes í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld eftir að hafa lent undir, en lokatölur urðu 3-1 sigur spænsku meistarana.

Unai Bustinza kom heimamönnum í Leganes yfir strax á sjöttu mínútu leiksins, en Lucas Vasquez jafnaði metin á elleftu mínútu. Casemiro kom svo Real í 2-1 fyrir hlé.

Staðan hélst 2-1 allt þangað til í uppbótartíma þegar Sergio Rames skoraði úr vítaspyrnu sem Real fékk eftir laglegt samspil. Lokatölur 3-1.

Real er í þriðja sætinu, fjórtán stigum á eftir Barcelona og sjö stigum á eftir Atletico Madrid.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira