Fótbolti

Það er aðeins eitt sem Neymar getur gert til að losna úr skugga Messi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hættu að elta mig!
Hættu að elta mig! Getty
Brasilíski fótboltamaðurinn Neymar þarf hreinlega að skipta um íþrótta ef hann ætlar einhvern tímann að losna úr skugga argentínska goðsins Lionel Messi.

Þetta segir Thierry Henry, fyrrverandi leikmaður Barcelona, sem starfar í dag sem sparkspekingur Sky Sports. AS greinir frá.

Neymar yfirgaf Barcelona síðasta sumar og varð um leið dýrasti fótboltamaður sögunnar. Hann hefur byrjað vel með franska liðinu og skorað 28 mörk í 29 leikjum en PSG er á góðri leið með að endurheimta Frakklandsmeistaratitilinn.

Parísarliðið er þó í vondum málum í Meistaradeildinni eftir 3-1 tap fyrir Real Madrid í fyrri leik liðanna í 32 liða úrslitum keppninnar á meðan Messi og félagar náðu í góð úrslit gegn Chelsea á útivelli.

Henry segir ekki nóg fyrir Neymar að skipta um lið til að losna úr skugga Messi. Argentínumaðurinn er einfaldlega sá besti sem spilar leikinn.

„Ég veit ekki hvort Neymar yfirgaf Barcelona til að losna úr skugga Messi en sannleikurinn er sá að allir leikmenn heims eru í skugga hans. Ef Neymar vill losna úr honum þarf hann að skipta um íþrótt,“ segir Thierry Henry.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×