Innlent

Ingvar Mar leiðir lista Fram­sóknar­flokksins í Reykja­vík

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ingvar Mar Jónsson.
Ingvar Mar Jónsson.
Ingvar Mar Jónsson, flugstjóri og fyrrverandi varaþingmaður og varaborgarfullrúi, leiðir lista Framsóknarflokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum þar sem efstu sex frambjóðendurnir eru kynntir. Af þeim eru fjórar konur:

1.    Ingvar Mar Jónsson, flugstjóri og fyrrverandi varaþingmaður og varaborgarfulltrúi.

2.    Snædís Karlsdóttir, lögfræðingur.

3.    Ásthildur Lóa Þórsdóttir, kennari og formaður Hagsmunasamtaka heimilanna.

4.    Hjördís Guðný Guðmundsdóttir, kennari.

5.    Sandra Óskarsdóttir, kennaranemi og stuðningsfulltrúi

6.    Bergþór Smári Pálmason Sighvats, nemi.

Í tilkynningunni segir að höfuðáhersla Framsóknarflokksins í Reykjavík sé að skólarnir verði framúrskarandi í borginni og að kennarinn verði þar í lykilhlutverki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×