Ég er brúða, þú getur sagt mér allt! Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 25. febrúar 2018 21:30 Guðrún notar stundum brúður í starfi sínu. Vísir/Eyþór
Á Barnaspítala Hringsins er starfræktur grunnskóli og leikstofa fyrir börn sem liggja inni á spítalanum. Grunnskólinn er vel búinn námsgögnum og þar fá börn kennslu eftir því sem heilsan leyfir. Kennarar fara einnig stundum á sjúkrastofur barnanna ef að þau komast ekki í skólastofuna. „Það er mikilvægt að vera jákvæður og glaður í þessari vinnu hér því hér ganga börn í gegnum erfiðleika og oft alvarleg veikindi,“ segir Guðrún og bendir á að það sé nauðsynlegt þrátt fyrir veikindi að reyna að stunda námið eins og hægt er. Það gefst yfirleitt vel,“ segir Guðrún. „Þau gleyma frekar veikindum þegar þau koma í skólann og eru á leikstofunni.“ Það sem hún tekur eftir og segir áhugavert er að börn sem hafa gengið í gegnum mikla erfiðleika muni frekar eftir því sem gekk vel og veitti þeim gleði. „Þar kemur leikstofan og skólinn svo sterkt inn,“ segir Guðrún. Guðrún segist finna fyrir þakklæti bæði frá börnunum og foreldrum þeirra. „Hér er verið að gera allt sem hægt er fyrir börnin. Það er mikið álag fyrir fjölskyldur þegar barn veikist. Og breytir oft miklu hjá fólki. Ef um mjög alvarleg veikindi er að ræða þá fer bara lífið hreinlega á hvolf,“ segir Guðrún.Þetta er brúðan Emma sem hefur komið sterk inn hjá yngstu nemendunum. Vísir/Eyþór„Við höfum að sjálfsögðu alltaf samband við heimaskóla barnanna. Sérstaklega ef börnin eru lengi hjá okkur. Vinnum í samræmi við það sem kennararnir leggja upp með. Stundum eru krakkarnir í sambandi við bekkinn sinn í gegnum Skype eða Messenger. Við leggjum mikið upp úr því að mæta barninu þar sem það er statt af skilningi og kærleika. Starfið er mjög gefandi og oft kenna börnin okkur fullorðna fólkinu því að þau eru alveg ótrúlega vitur mörg og skynsöm. Sérstaklega þegar þau eru að ganga í gegnum svona veikindi. Við leggjum áherslu á að vinna með gildin. Einnig reynum við að hafa leikinn og gleðina í forgangi. Spilum og málum. Vinnum skemmtileg verkefni. Eins og til dæmis verkefni um Barnasáttmálann. Þar hafa þau teiknað myndir af sjálfum sér, hvert barn segir eitthvað viturlegt sem í því býr um réttindi barna. Til dæmis, öll börn hafa rétt á að vera í skóla. Öll börn eiga að eiga fjölskyldu og fá að fara í bíó. Eitt barn sagði við mig um daginn að það væri ekki nógu góður nemandi. Ég spurði hvað það meinti með því, þá sagði það að það væri ekki nógu gott í stærðfræði. Ég sagði að ég teldi að það væri góður nemandi. Af því það hefði mjög góða samskiptahæfileika, það væri samviskusamt, kærleiksríkt og gott. Það væri að vera góður nemandi. Ekki endilega að fá tíu í stærðfræði.“ Guðrúnu vill leggja áherslu á að börnin hafi góða sjálfsmynd. „Ég vil leggja áherslu á sjálfsmyndina, sjálfsvirðinguna, sköpunina og samvinnu. Og að leggja áherslu á styrkleikana og að vinna með hæfileika barnanna. Öll börn eru stútfull af hæfileikum og það er mikilvægt að rækta þá. Það er þetta viðhorf að horfa á styrkleikana sína og góð gildi,“ segir Guðrún. Guðrún notar stundum brúður í starfi sínu með afar góðum árangri. Brúðan Emma hefur komið sterk inn hjá yngstu nemendunum. „Börnin tala öðruvísi við brúðurnar heldur en okkur kennarana. Þau tala yfirleitt aldrei um sjúkdóma sína við okkur kennarana. En við brúðurnar geta þau sagt allt. Brúðurnar hafa gengið í gegnum ýmislegt, til dæmis hún Emma sem er með sykursýki. Einn nemandi hjá okkur tók til dæmis að sér að kenna Emmu mannasiði. Það er alveg merkilegt að sjá hvernig tengingin verður sterk á milli barnsins og brúðunnar. Það var barn sem sagði einu sinni við mig; þetta er bara brúða! Þá svaraði ég, já. En þegar ég fer inn í brúðuna með hendurnar þá verður þetta lifandi brúða. Stundum segir brúðan: Ég er bara brúða, þú getur sagt mér allt.“ Brúðumeðferðir eru mjög vel þekktar á sjúkrahúsum, til dæmis í Bandaríkjunum og Bretlandi og reynast til dæmis mjög vel þar sem börn hafa glímt við tilfinningalega erfiðleika og orðið fyrir áföllum. Hér í skólastofunni nota ég brúðurnar meira í gegnum leikinn.“ Guðrúnu veitist þetta létt, hún er leikkona og kannski muna einhverjir eftir henni frá níunda áratugnum þegar hún sá um barnatíma Stöðvar 2. Guðrún segist vilja leggja áherslu á sjálfsmyndina, sjálfsvirðinguna, sköpunina og samvinnu.Vísir/Eyþór
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira