Enski boltinn

Willian: Mourinho er frábær stjóri

Dagur Lárusson skrifar
Willian fagnar marki sínu í vikunni.
Willian fagnar marki sínu í vikunni. vísir/getty
Willian, leikmaður Chelsea, fór fögrum orðum um fyrrum stjóra sinn José Mourinho í viðtali í gær en þá var hann spurður út í stórleikinn um helgina.

Það var José Mourinho sem keypti Willian til Chelsea árið 2013 og segist Willian eiga aðeins góðar minningar af honum.

„Ég á frábærar minningar með honum,“ sagði Willian.

„Hann var og er frábær stjóri fyrir mér, og ég held að ég sé ekki einn um þá skoðun heldur held ég að stuðningsmenn Chelsea séu sammála mér.“

„En núna erum við hjá sitt hvoru liðinu og því má ég ekki vera að einblína hann heldur á mitt lið. Við erum auðvitað vinir en á meðan leiknum stendur þá einbeiti ég mér aðeins að leiknum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×