Stórkostlegur Griezmann í sigri Atletico

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Frakkinn skoraði fernu í kvöld
Frakkinn skoraði fernu í kvöld vísir/getty
Antoine Griezmann var allt í öllu í stórsigri Atletico Madrid á Leganes í spænsku La Liga deildinni í fótbolta í kvöld.

Frakkinn skoraði tvö mörk með níu mínútna millibili eftir um hálftíma leik í Madrid og kom heimamönnum í 2-0. Sú var staðan þegar leikmenn gengu til búningsherbergja.

En Griezmann var hvergi hættur. Hann fullkomnaði þrennu sína á 56. mínútu og ákvað að gera enn betur og bætti við fjórða marki sínu og fjórða marki Atletico á 67. mínútu. Hann fékk svo gult spjald tveimur mínútum seinna.

Með sigrinum minnkaði Atletico forystu Barcelona á toppi deildarinnar niður í fjögur stig, en Börsungar eiga leik til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira