Sægur leikara í sveitinni Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 10. febrúar 2018 11:00 Leikhópurinn sem tekur þátt í nýjustu uppfærslu Leikdeildar Ungmennafélags Biskupstungna, samhentur hópur af nýjum og reyndari leikurum. Fréttablaðið/Magnús Hlynur Hreiðarsson
Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna frumsýndi nýlega leikritið „Sálir Jónanna ganga aftur“ eftir Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu Óskarsdóttur og Unni Guttormsdóttur í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar. Sýningar fara fram í félagsheimilinu Aratungu. Leikritið er „gaman-draugadrama“ sem styðst við minni úr þjóðsögunni um sálina hans Jóns míns og leikritinu Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson. Þar er sagt frá fjórum Jónum sem gefa upp öndina á svipuðum tíma. Djöfullinn nýtir tækifærið og reynir allt til að ná þessum fjórum sálum, því í helvíti er heldur þunnskipað lið. Það gengur ýmislegt á þegar sálum skal komið yfir til himnaríkis og margt gerist á leiðinni upp sem fær gesti til að hlæja og hlæja. „Sálir Jónanna ganga aftur“ er þrítugasta leikritið sem Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna setur upp frá stofnun þess 1961. Fjórtán leikarar taka þátt, auk aðstoðarfólks. Íris Blandon, sem leikur Móra, er formaður leikfélagsins. Hún segir nýja leikritið vera frábært verk. „Leikhópurinn er búinn að hlæja mikið saman í æfingaferlinu, ekki síst þegar við lásum verkið yfir, sem segir okkur að þetta sé gott stykki.“ Íris leggur áherslu á að áhugaleikfélag með frábæru fólki úr Bláskógabyggð og sveitarfélögunum í kring standi að sýningunni. En hvernig gekk að manna leikritið í ár? „Það var ekkert mál, við fengum fullt af nýju fólki í bland við reynslubolta úr félaginu sem er æðislegt. Það er mikill áhugi á leiklist í uppsveitum Árnessýslu enda víða verið að setja upp leikrit,“ segir Íris og bætir því við að það sé bráðnauðsynlegt fyrir hverja sveit að eiga áhugaleikfélag. „Það er svo gott fyrir ungt fólk að starfa í leikfélagi til að losna við feimni og hömlur og ekki síst að gera sig að fífli og njóta þess,“ segir Íris hlæjandi. Hún hvetur íbúa á Suðurlandi og aðra áhugasama til að mæta á sýningu í Aratungu til að skemmta sér eina kvöldstund og fá útrás fyrir hlátur.Vísir/Magnús Hlynur
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Jón og Hafdís festu kaup á einbýli með bátaskýli Lífið Fann fíkniefnin strax Lífið Falleg tónlist GDRN hljómaði ekki nógu vel Gagnrýni Þessi lönd gáfu Íslandi stigin þrjú Lífið „Veistu það Frosti, ég get ekki tekið þetta viðtal“ Lífið Þátttaka Ísraela hafi skemmt mikið Lífið Inga Lind selur íbúð við Valshlíð Lífið Hellti sér yfir EBU að lokinni keppni Lífið Þessi skipuðu íslensku dómnefndina í Eurovision Lífið Neyslusaga móður: „Það var rítalínið sem rústaði mér alveg“ Áskorun Fleiri fréttir Nóbelsverðlaunahafinn Alice Munro er látin Fjögurra ára rússíbanareið að baki Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar Hildur, Rán og Ásta fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Bein útsending: Setning Barnamenningarhátíðar Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar Eigandinn heltekinn af skrímslaverkunum hans Sindra Kveður Tjarnarbíó: „Of lítið og of seint“ Þessi voru tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Vatnið alltaf heillað þrátt fyrir mikla hræðslu Stórglæsilegar stjörnur á Eddunni Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur Ætlar aldrei að setjast í helgan stein Sjá meira