Innlent

Fjarðarheiði og fagradal lokað vegna veðurs

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Töluvert verður um lokanir í dag vegna veðurs.
Töluvert verður um lokanir í dag vegna veðurs. Jóhann K. Jóhannsson
Vegagerðin hefur lokað Fjarðarheiði og Fagradal vegna veðurs. Mývatns- og Möðrudalsöræfum hefur ennig verið lokað vegna veðurs.

Í dag og fram á sunnudag verða aðstæður mjög erfiðar, gangi veðurspá eftir, og þjónusta takmörkuð þess vegna.  Vegfarendur mega gera ráð fyrir að vegir lokist fyrirvaralaust og þjónustu hætt.  Vegagerðin hvetur fólk til að fylgjast með tilkynningum um færð á heimasíðu Vegagerðarinnar og í síma 1777.  

Á Suð-vesturlandi er víða hálka eða hálkublettir. Hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum. Þæfingsfærð er austantil á Suðurlandi.

Hálka er víða á Vesturlandi. Þungfært er í Hvalfirði en Þæfingsfærð á Fróðárheiði.

Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja á vegum. Þungfært er á Klettshálsi og yfir hálsana í Gufudalssveit.

Á Norðurlandi er víða hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Éljagangur og snjókoma er víða á Norð-austurlandi.

Á Austurlandi er víða snjóþekja og snjókoma á stöku stað. Þæfingur er á Fagradal. Búið er að loka Fjarðarheiði vegna veðurs. Snjóþekja og éljagangur er með suð-austurströndinni.

Appelsínugul viðvörun Veðurstofu Íslands er í gildi fyrir Vestfirði, Strandir, Norðurland vestra og Suðausturland. Gul viðvörun er annars í gildi fyrir allt landið.

Gul viðvörun:

Þegar kemur fram á daginn fer veður versnandi, fyrst á  Norðurlandi, síðan á Vestfjörðum við Breiðafjörð og í Borgarfirði.  18-22 m/s, snjókoma skafrenningur og blint.  Hvessir suðvestanlands, einkum eftir hádegi með  með skafrenningi og takmörkuðu skyggni.  Austanlands skánar veður mjög fyrir hádegi, en hvessir aftur með V-átt í kvöld.

Appelsínugul viðvörun:

Suðaustanlands, einkum frá Vík austur á Skeiðarársand verður mjög hvöss NV-átt fljótlega upp úr hádegi og fram á kvöld.  25-28 m/s og nánast ekkert skyggni í glórulausum skafrenningi.  Einnig á Breiðamerkursandi undir kvöld og hviður  allt að 50 m/s. 

Yfirlit yfir hugsanlegar lokanir má sjá hér:  Lokanir 9. - 11.-feb.-2018

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×