Innlent

Sif Konráðsdóttir hefur enn ekki stigið fram

Jóhann K. Jóhannsson og Kristín Ólafsdóttir skrifa
Sif Konráðsdóttir, aðstoðarmaður umhverfisráðherra, hefur enn ekki stigið fram og útskýrt hvers vegna það dróst að greiða fyrrum umbjóðendum hennar bætur þegar hún starfaði sem réttargæslumaður. Í samtali við fréttastofu í dag sagði Sif að von væri á yfirlýsingu vegna málsins.

Ólöf Rún Ásgeirsdóttir fyrrum skjólstæðingur Sifjar Konráðsdóttur steig fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær og sagði frá því að hún hefði þurft lögfræðiaðstoð við að innheimta bætur frá Sif sem var réttargæslumaður Ólafar í kynferðisbrotamáli. Ólöfu hafði verið dæmdar bætur í Hæstarétti og lauk málinu með sátt í gegnum lögmannafélag Íslands. Ólöf undrast að málið hafi aldrei verið rannsakað til hlítar.

Ólöf segir að ráðning Sifjar sem aðstoðarmaður umhverfisráðherra hafi ýft upp gömul sár, annars vegar vegna kynferðisbrotsins og hins vegar baráttunnar um að fá bæturnar greiddar.

Aldrei réttir peningar

Í 2. kafla, 3. grein í reglugerð um fjárvörslureikninga lögmanna segir: „Lögmaður sem varðveitir fé umbjóðanda síns, skal færa sérstakan viðskiptareikning í bókhaldi sínu, sem sýnir inneign umbjóðandans á hevrjum tíma. Á reikninginn skal færa allt fé, sem lögmaðurinn tekur við til varðveislu.“

Þá segir í 7. grein reglufgerðarinnar að út af fjárvörslureikningi megi aðeins taka ef og þegar fé greiðist til umbjóðanda eða er notað til greiðslu fyrir hans hönd.

Sjá einnig: Ráðherra treystir aðstoðarmanni þrátt fyrir kæru til Lögmannafélagsins

„Þetta eru náttúrulega aldrei réttir peningar af því að þetta fór alltof langa leið,“ sagði Ólöf Rún í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi.

„Það hefur enginn getað svarað því hvort að hún hafi borgað peningana sem við fengum.“

Kurr innan Vinstri grænna

Umhverfisráðherra sagði í viðtali við fréttastofu síðustu helgi að Sif nyti trausts í starfi og að málið hefði verið afar óheppilegt en að því hefði verið lokað með sátt.

Samkæmt heimildum fréttastofu er töluverður kurr í Vinstri grænum vegna málsins en Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra og eini ráðherrann sem kemur utan þings, var ráðinn inn að tillögu formanns flokksins, Katrínar Jakobsdóttur.

Sif hefur ekki stigið fram vegna málsins en í samtali við fréttastofu í dag sagði hún málið afar óheppilegt og að von væri á yfirlýsingu frá henni þar sem hún fer yfir málið. Sif gaf ekki kost á viðtali vegna málsins í dag.


Tengdar fréttir

Tók hálft ár að fá bætur frá aðstoðarmanni: „Vona að ráðherra treysti henni ekki fyrir peningum“

Sif Konráðsdóttir, annar aðstoðarmanna umhverfisráðherra, dró að greiða bætur til að minnsta kosti þriggja barnungra brotaþola sem hún var réttargæslumaður fyrir. Einn brotaþolanna segir ráðningu Sifjar í mikilvægt starf ýfa upp gömul sár. Svör ráðherra um að hann treysti henni séu ófullnægjandi enda þurfi að rannsaka málið til hlítar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×