Sport

Snorri hafnaði í 54. sæti

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Snorri Einarsson.
Snorri Einarsson. vísir/getty
Snorri Eyþór Einarsson keppti í morgun í 15 km skíðagöngu með frjálsri aðferð á Vetrarólympíuleikunum í PyeungChang í Suður-Kóreu.

Snorri kom í mark á 37:05,6 mínútum og varð ríflega þremur mínútum á eftir fyrsta manni.

Íslenski skíðagöngukappinn keppti í 30 km göngu um síðustu helgi og hafnaði þar í 56. sæti en hann er að keppa á sínum fyrstu Vetrarólympíuleikum.

Dario Cologna frá Sviss varð Ólympíumeistari í greininni en Simen Hegstad frá Noregi varð annar og Denis Spitov frá Rússlandi fékk bronsið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×