Innlent

Alþingisbatteríin búin hjá Vigdísi

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Vigdís vill verða næsti borgarstjóri Reykjavíkur.
Vigdís vill verða næsti borgarstjóri Reykjavíkur. Vísir/Ernir
Vigdís Hauksdóttir segist ekki hafa getað hugsað sér að fara í framboð til Alþingis fyrir Miðflokkinn í þingkosningunum síðasta haust. Hún segir alþingisbatteríin hafa verið búin og að hún hafi verið ósátt við margt í starfi þingsins.

Þetta kom fram í máli Vigdísar í samtali við Heimi Má Pétursson í Víglínunni í dag, en Vigdís mun leiða lista Miðflokksins í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Hún stefnir á að taka með sér 4-6 fulltrúa í borgarstjórn.

Hún segir að enginn þurfi að efast um að hún fylgi Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, að málum.

„Við höfum verið gríðarlega þéttir samherjar í þessum stóru málum. Það þarf enginn að efast um mín heilindi í því máli.“

Skuldamál borgarinnar efst á baugi

Skilafrestur framboða á lista Miðflokksins í borginni rann út á hádegi í dag og verða efstu sex sætin kynnt næsta laugardag.

„Markmiðið er hjá okkur að stilla upp sigurstranglegum lista sem hristir upp í borgarmálunum, tekur á skuldastöðu reykjavíkurborgar og hefur það afl að vera það stór að leiða næsta meirihluta í borginni,“ segir Vigdís.

Hún segir að fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar verði ofarlega á baugi í kosningabaráttu Miðflokksins.

„Skuldamál reykjavíkurborgar, það verður ekki farið fram með dýr kosningaloforð nema það komi sparnaðartillögur á móti. Fyrstu þrjá mánuðina eftir kosningar verður farið í það að skilgreina lögbundið hlutverk Reykjavíkur og það skoðað hvort útsvarstekjurnar séu að skila sér í þá hluti sem þeir eiga að gera,“ segir Vigdís.

Og þú vilt verða borgarstjóri?

„Já.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×