Enski boltinn

Stjóri Rochdale fagnar dýfum Alli

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Dele Alli fagnar marki. Hann hefur þrisvar fengið gult spjald fyrir að reyna að næla í víti.
Dele Alli fagnar marki. Hann hefur þrisvar fengið gult spjald fyrir að reyna að næla í víti. vísir/getty
Keith Hill, knattspyrnustjóri C deildar liðs Rochdale, sagðist styðja Dele Alli og meintar dýfur hans, sérstaklega ef hann nær að tryggja Englandi Heimsmeistaratitil.

Rochdale mætti Tottenham í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í gær og gerðu liðin 2-2 jafntefli. Alli nældi í vítaspyrnu undir lok leiksins sem Harry Kane skoraði úr og kom Tottenham yfir. Steve Davies jafnaði svo fyrir Rochdale í uppbótartíma.

„Ég mun ekki erfa hann um þessa spyrnu og ef hann gerir þetta fyrir England í sumar og við vinnum HM þá mun ég svo sannarlega styðja hann,“ sagði Hill eftir leikinn í gærkvöldi.

„Við eigum það til að missa okkur um of í samsæriskenningunum og eigum því að trúa því að hann sé að dýfa sér. Ég held hann hafi leitað að snertingunni í þetta skipti.“

Alli hefur verið spjaldaður oftar en nokkur annar leikmaður fyrir að reyna að fiska víti með leikaraskap. Hann fékk gult spjald fyrir þær sakir gegn Liverpool á dögunum og þótti mörgum hann falla nokkuð auðveldlega til jarðar í gær.

Hill sér þó lítið að þeim tilburðum og telur það hið eðlilegasta mál að leikmenn nái sér í vítaspyrnur.

„Ef framherji eða miðjumaður sér að hann er í tækifæri til þess að fá vítaspyrnu, frábært. Hvort sem það er Dele Alli eða Steve Davies þá skiptir það engu máli,“ sagði Hill.

Liðin munu þurfa að spila annan leik til þess að knýja fram úrslit í einvíginu eftir jafntefli gærdagsins. Sá leikur mun fara fram í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×