Bakþankar

Nístingskuldi á Nýbýlavegi

Baldur Guðmundsson skrifar
Það tók mig 20 fjandans mínútur að aka niður hálfan Nýbýlaveginn í gær. Mér skilst að umferðin þennan hrollkalda janúarmorgun hafi verið á pari við andlega líðan mína eftir bílferðina; óvenju slæm.

Síðastliðið sumar sótti að mér sú þrá að eignast jeppa. Eftir að hafa reynsluekið spánnýjum 5 milljóna Land Rover Discovery-jepplingi kom babb í bátinn. Ég átti ekki 5 milljónir. Úr varð að ég sættist á þá „málamiðlun“ að kaupa reiðhjól. Niðurlægingin var yfirþyrmandi og algjör. Á þeim stað var ég andlega eftir þessa sneypuför að mér fannst ég hafa unnið varnarsigur þegar ég laumaðist til að panta mér rafknúið reiðhjól. Annað okkar hjóna tók vanalega strætó í vinnuna, áður en hjólið kom til sögunnar. Mér reiknast til að ég borgi hjólið upp á rúmlega einu ári, ef ég hjóla alla daga í vinnuna.

Frá því í ágúst hef ég hjólað í vinnuna daglega. Ég bý fyrir neðan Nýbýlaveg og hjóla niður Fossvogsdal, upp meðfram Kringlumýrarbraut og niður í Hlíðar. Ferðalagið tekur mig 10 til 12 mínútur – rafhjólum er nefnilega sama um vind og brekkur.

Á þeim tíma sem það tók mig að aka niður hálfan Nýbýlaveginn hefði ég getað hjólað í vinnuna og heim aftur. Negld dekk, ljós á hjólið, góður hlífðarfatnaður og hæfileg hreyfing gerir ferðalagið á rafhjólinu beinlínis notalegt og nær úr manni morgunhrollinum, eins öfugsnúið og það kann að hljóma.

Þar sem ég sat fastur í umferðarteppunni – og virti argur fyrir mér þreytulega og skjálfandi samborgara mína í næstu bílum – rann það upp fyrir mér að mér er fyrirmunað að skilja hvers vegna hjólreiðastígar borgarinnar eru ekki fullir af rafhjólum. Þessi Land Rover má bara eiga sig sjálfur.






×