Sport

Gunnar Nelson er nýr formaður Mjölnis

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gunnar er hér ásamt Jóni Viðari Arnþórssyni, fyrrum formanni Mjölnis.
Gunnar er hér ásamt Jóni Viðari Arnþórssyni, fyrrum formanni Mjölnis. mjölnir.is
Það hafa verið breytingar hjá Mjölni síðustu mánuði og sú nýjasta er sú að stærsta stjarna félagsins, Gunnar Nelson, er orðinn formaður félagsins.

Hann tekur við starfinu af vini sínum Jóni Viðari Arnþórssyni sem steig til hliðar fyrir nokkru síðan.

Þó svo Gunnar sé orðinn virkari í starfinu hjá Mjölni þá mun þessi nýja staða ekki hafa nein áhrif á feril hans sem bardagamanns.

Sjá einnig: Formaður Mjölnis dregur sig í hlé eftir átök

„Mjölnir hefur verið afar stór hluti af mínu lífi undangengin 13 ár og ég tek stoltur að mér það hlutverk að verða formaður félagsins. Með þessu hef ég þó ekki í hyggju að fara að skipta mér mikið af rekstrinum. Afar vandað fólk er í því hlutverki. Ég mun hinsvegar vera virkur þátttakandi í stefnumótun og eflingu íþrótta- og keppnisstarfs. Hér hefur minn bardagaferill mótast og mun halda áfram að gera það næstu árin en samhliða mun ég nýta reynslu mína til að styðja aðra í sinni mótun” segir Gunnar.

Eftir stendur sterkari hópur

Er Mjölnir flutti í nýja húsnæðið sitt í Öskjuhlíðinni fylgdu því miklar breytingar en Gunnar segir að jafnvægi sé að komast á starfsemina og að keyrt sé áfram af fullum krafti.

„Breytingum eins og þeim að flytja í mun stærra húsnæði fylgdu skiljanlega áherslubreytingar. Það þurfti að eiga sér stað smá naflaskoðun og það þurfti að leggja nýjar línur. Ekki var einróma sátt um þær ákvarðanir sem teknar voru og mannabreytingar fylgdu í kjölfarið. Eftir stendur sterkur og samstíga hópur sem lítur framtíðina björtum augum. Þetta var erfitt á meðan á því stóð en við sem eftir erum, erum sannfærð um að rétt skref hafi verið stigin. Við erum að horfa fram veginn og erum með áætlun um hvernig við ætlum að haga uppbyggingu félagsins. Meðlimir eru fleiri, tímataflan hlaðnari og stemmningin betri en nokkru sinni fyrr. Þannig að það er á hreinu að við erum að gera eitthvað rétt.“

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×