Glamour

Snyrtivörumerki Rihönnu er að slá sölumet Kylie Jenner

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Stjörnurnar gera ýmislegt til að fá meira salt í grautinn, ilmvötn, fatalínur og snyrtivörur eru vinsælir hlutir sem stjörnurnar setja nafnið sitt við. Í fyrra þá tók söngkonan Rihanna sig til og gerði snyrtivörurlínuna Fenty Beauty. Óhætt er að segja að vörurnar hafi heldur betur notið vinsælda. 

Strax fyrsta mánuðinn, september í fyrra, þá seldist línan fyrir um 72 milljónir dollara. Núna er Rihanna á góðri leið að með að velta sjálfri Kylie Jenner úr sessi sem söluhæsta snyrtivörumerkið. Samkvæmt ráðgjafafyrirtækinu Slice Intelligence hefur Fenty Beauty selst um fimm sinnum meira en Kylie Cosmetics á fyrsta mánuði þessa árs. Það er ansi vel gert hjá Rihönnu þar sem snyrtivörulína Jenner hefur átt ótrúlegum vinsældum að fagna og stefnir allt í það að raunveruleikastjarnan verði orðin billjónamæringur árið 2022. 

Rihanna getur því unað vel við sitt en þessar, greinilega góðu, snyrtivörur fást í verslunum Sephora og Harvey Nichols. 

Everything you need for a perfect #FENTYFACE

A post shared by FENTY BEAUTY BY RIHANNA (@fentybeauty) on






×