Múrverktaki lagði Tollstjóra í deilu um Sprinter Jóhann Óli Eiðsson skrifar 5. febrúar 2018 07:00 Myndin sýnir eldri bræður umrædds Sprinter.
Múrverktaki þarf að greiða þrettán prósent í vörugjöld af Benz Sprinter bifreið sem hann flutti til landsins. Þetta er niðurstaða yfirskattanefndar. Áður hafði Tollstjóri álitið að leggja bæri 65 prósenta vörugjald á bifreiðina. Umrædd bifreið var búin sex sætum fyrir farþega auk eins fyrir bílstjóra. Fyrir aftan sætin er að finna rúmgott rými, sambyggt stýrishúsinu, hugsað til að flytja hina ýmsu muni. Vöruflutningarýmið er 170 sentimetrar að lengd en farþegarýmið 230 sentimetrar. Að mati Tollstjóra var bifreiðin fyrst og fremst hugsuð fyrir fólksflutninga. Því bæri að fella hana í flokk 8703 sem ber 65 prósenta vörugjöld. Þessu vildi verktakinn ekki una enda taldi hann að hún væri aðallega til þess að flytja varning og verkfæri. Því væri bíllinn vöruflutningabifreið sem ætti heima í flokki 8704. Yfirskattanefnd féllst á það mat Tollstjóra að bifreiðin ætti að falla undir vörulið 8703. Hins vegar var það mat nefndarinnar að það hefði ekki úrslitaáhrif í málinu. Nefndin rakti hvernig ósamræmi væri í flokkun tollskrár og laga um vörugjöld af ökutækjum, eldsneyti o.fl. Var það niðurstaða hennar að lokum að bifreiðin væri ekki ökutæki til vöruflutninga samkvæmt áðurnefndum vörulið heldur „sendibifreið aðallega ætluð til vöruflutninga undir fimm tonn að leyfilegri heildarþyngd, með sambyggt stýrishús og flutningsrými og án farþegasæta í farmrými“. Því heyrði hún undir undanþáguákvæði laganna og greiða skyldi þrettán prósenta toll.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Búast má við slyddu Veður Ný sýn fékk meirihluta Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bíll logaði í Vesturbænum Innlent Frestun verkfalla kemur til greina Innlent Fleiri fréttir Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Sjá meira