Jóhann Berg og félagar töpuðu

Dagur Lárusson skrifar
Jóhann Berg í leik með Burnley.
Jóhann Berg í leik með Burnley. vísir/getty
Sung-Yueng Ki skoraði sigurmark Swansea á lokamínútumnum gegn Jóhanni Berg og félögum í Burnley en með sigrinum komst Swansea upp í 15. sæti með 27 stig.

Það var fátt um fína drætti í fyrri hálfleiknum og lítið marktækt sem gerðist og því var staðan markalaus í leikhlé.

Eina mark leiksins leit dagsins ljós á 81. mínútu þegar Sung-Yueng Ki skoraði  og tryggði sínum mönnum þrjú dýrmæt stig.

Eftir leikinn situr Burnley í 7. sæti deildarinnar með 36 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira