Glamour

Eru Norðmenn hinar nýju tískufyrirmyndir?

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Tískuvika fór nýlega fram í höfuðborg Noregs, Osló en hún nefnist Oslo Runway. Norðmenn hafa hingað til ekki beint verið þekktir fyrir tískuvit og alla jafna fallið í skuggann á nágrönnum sínum, Svíþjóð og Danmörku, þegar kemur að hönnun og tísku.

En nú er annað upp á teninginn, meira að segja WMagazine er búið að kveikja á tískuvitinu hér uppi í norðrinum. Það má segja að sjónvarpsserían Skam hafi opnað margar dyr fyrir Norðmenn sem gátu loksins tekið almennilegt skref fram úr skugganum á frændum sínum í Skandinavíu. Ætli það sé komið til að vera? 

Meðal hönnuða sem vert er að fylgjast með frá Osló eru Veronica B Vallenes, byTiMo og FWSS. 

Óhræddir við liti, merkjavöru og janúarkuldann sem þessir smekklegu gestir Osló Runway klæddu af sér á merkilega hressandi máta. Eitthvað fyrir okkur hér til að taka til fyrirmyndar? Sjá myndasafn neðst í fréttinni. 






×